Helgin í Hallgrímskirkju: Orgelmaraþon, gleði og vellíðan á menningarnótt og lokatónleikar Orgelsumars í Hallgrímskirkju
17. ágúst 2026

Orgelsumar: Orgelmaraþon á Menningarnótt og dagskrá fyrir börnin
og lokatónleikar Orgelsumars í Hallgrímskirkju 2026

Orgelsumar: Orgelmaraþon á Menningarnótt og dagskrá fyrir börnin
Laugardagur 22. ágúst 2026
Á Menningarnótt býður Hallgrímskirkja upp á fjölbreytta orgeldagskrá fyrir gesti á öllum aldri. Orgelsmaraþonið hefst kl. 14 og stendur fram eftir degi, þar sem sjö organistar setjast við hið stórbrotna Klais-orgel Hallgrímskirkju.
Orgelsmaraþon
14:00 – Ávarp og söngstund fyrir börnin
14:30 – Steinar Logi Helgason
15:00 – Matthías Harðarson
15:30 – Pétur Nói Stefánsson
16:00 – Elísabet Þórðardóttir
16:30 – Magnús Ragnarsson
17:00 – Eyþór Franzson Wechner
17:30 – Christian Barthen
Gleði og vellíðan – dagskrá fyrir börnin
Kl. 14–16 verður sérstök barnadagskrá í Hallgrímskirkju.
Dagskráin hefst kl. 14 með ávarpi og söngstund fyrir börnin. Að henni lokinni verður börnunum boðið að lita Hallgrímskirkjukórónur eftir listakonuna Jönu Maríu Guðmundsdóttur, teikna „gleðiefni“ á stórt sameiginlegt listaverk og eiga notalega stund í hlýlegu og litskrúðugu umhverfi kirkjunnar.
Á meðan á barnadagskránni stendur mun orgeltónlist hljóma frá stóra Klais-orgeli Hallgrímskirkju.
Aðgangur er ókeypis

Lokatónleikar Orgelsumars 2026
Sunnudagur 23. ágúst kl. 17
Christian Barthen, orgel
Organisti Bern Münster í Sviss
Orgelsumar 2026 lýkur með glæsilegum tónleikum þar sem Christian Barthen, organisti og tónlistarstjóri við Dómkirkjuna í Bern, leikur á Klais-orgel Hallgrímskirkju.
Christian Barthen (f. 1984 í Saarbrücken) er alþjóðlega starfandi konsertorganisti og prófessor í orgelleik við Tónlistarháskólann í Bern (HKB). Hann hefur stundað nám í orgelleik, píanóleik og semballeik, auk kirkjutónlistar og tónlistarkennslu, í Saarbrücken, París og Stuttgart.
Barthen hefur hlotið verðlaun í virtum orgel- og tónlistarkeppnum, meðal annars Grand Prix de Chartres. Hann hefur komið fram sem einleikari víða um Evrópu, í Rússlandi, Suður-Ameríku og Austurlöndum fjær og tekið þátt í fjölmörgum útvarps-, sjónvarps- og hljóðritunarverkefnum.
Efnisskrá
Johann Sebastian Bach (1685–1750)
Fantasia super „Komm, Heiliger Geist“, BWV 651
Gaston Litaize (1909–1991)
Lied – úr Douze Pièces
Marcel Dupré (1886–1971)
Prélude et Fugue en la bémol majeur, op. 36/2
Sigfrid Karg-Elert (1877–1933)
Harmonies du Soir, op. 72/1
Rondo alla Campanella, op. 156
Louis Vierne (1870–1937)
6. Symphonie, op. 59
– Adagio
– Final
Miðasala: í Hallgrímskirkju og á tix.is
Aðgangseyrir: 4.200 kr.