Hinsegin dagar eru hafnir og eru tröppurnar í Hallgrímskirkju að vanda skreyttar regnboganum.
7. ágúst 2026

Hinsegin dagar eru hafnir og af því tilefni eru tröppurnar í Hallgrímskirkju skreyttar regnboganum.

Hinsegin dagar eru mikilvægir. Þeir vekja athygli á misrétti og ofbeldi og rjúfa þögnina.
Hallgrímskirkja styður við réttindabaráttu hinsegin samfélagsins og óskar öllum gleðilegra Hinsegin daga.
Gleðigangan sem er hápunktur hátíðarinnar fer af stað laugardaginn 8. ágúst kl. 14. frá Hallgrímskirkju.
Úr sálmi 505: Ó ást sem faðmar allt!
1 Ó, ást, sem faðmar allt! Í þér
minn andi þreyttur hvílir sig,
þér fús ég offra öllu hér,
í undradjúp þitt varpa mér.
Þín miskunn lífgar mig.
2. Ó, fagra lífsins ljós er skín
og lýsir mér í gleði' og þraut,
mitt veika skar, það deyr og dvín,
ó, Drottinn minn, ég flý til þín
í dagsins skæra skaut.
3. Ó, gleði' er skín á götu manns
í gegnum lífsins sorgarský.
Hinn skúradimmi skýjafans
er skreyttur litum regnbogans
og sólin sést á ný.
George Matheson 1882 – Sigurbjörn Sveinsson, 1931 – Sb. 1972
HALLGRÍMSKIRKJA – STAÐURINN OKKAR