Vetrarhátíð og HyperOrgel í Hallgrímskirkju 5. og 7. febrúar 2026
4. febrúar 2026

HyperOrgel og Vetrarhátíð í Hallgrímskirkju 5. og 7. febrúar 2026


Vetrarhátíð verður sett fimmtudaginn 5. febrúar hjá nágrönnum okkar í garði Listasafns Einars Jónssonar, Hallgrímstorgi 3, kl. 19.00. Heiða Björg Hilmisdóttir, borgarstjórinn í Reykjavík mun setja hátíðina ásamt því að Logi Einarsson, menningar- nýsköpunar og háskólaráðherra mun segja nokkur orð í tilefni af því að Listasafn Íslands og Listasafn Einars Jónssonar hafa nú sameinast. Opnunarverk hátíðarinnar er verkið Synergy eftir listakollektívið Mercury Maze Studio, sem samanstendur af Owen Hindley, Katerinu Blahutova og Þorsteini Eyfjörð og verður frumsýnt við setninguna og eftir setninguna er tilvalið að koma til okkar og upplifa ljóslist og tónlist .
FIMMTUDAGUR 5. FEBRÚAR kl. 19:30
Dagskráin við Hallgrímskirkju hefst kl. 19:30. Verkið sem varpað verður á Hallgrímskirkju er eftir listamanninn Örn Ingólfssonber og ber heitið Ljósamót. Hallgrímskirkja umbreytist í lifandi ljósform þar sem litir, mynstur og hreyfing leika um bygginguna og draga fram kraftmikla arkitektúr hennar. Ljósin fylgja línum kirkjunnar, brjóta þær upp og endurskapa, þannig að hið kunnuglega verður nýtt. Verkið er samtal ljóss og forms, þar sem rýmið titrar milli kyrrðar og orku. Verkið er á Ljósaslóð Vetrarhátíðar 2026.
HyperOrgel / Intelligent Instruments Lab í Hallgrímskirkju
Tónleikar kl. 19:45 í Hallgrímskirkju í beinu framhaldi af opnun Vetrarhátíðar í Reykjavík 2026
Flutt verða glæný gagnvirk tónverk með tölvutengdum hljóðfærum eftir Tómas Manoury, Steinunni Harðardóttur, Jesper Pedersen og Áka Ásgeirsson.
LAUGARDAGUR 7. FEBRÚAR
HyperOrgel / Intelligent Instruments Lab í Hallgrímskirkju
kl. 12:00–12:30 – Hádegistónleikar / Matinée
Flutt verður verkið r lego (3’52”) eftir Örlyg Steinar Arnalds auk glænýrra verka eftir Yulia Vasileva, Ronju Jóhansdóttur, Gunnar Andreas Kristinsson, Guðmund Vigni Karlsson, Arnljót Sigurðsson.
Þar á eftir verða flutt Tónverk á heila tímanum
kl. 13:00 - Dettifoss
kl. 14:00 – Victor Shepardson & Julie Zhu
kl. 16:00 – Svartþoka
kl. 17:00 – Sveinn Ingi Reynisson
kl. 13:20–13:50 – Verður einnig Orgeltæknitónsmíðaspjall í Norðursal Hallgrímskirkju
Áki Ásgeirsson leiðir umræður
========================================
Fyrir áhugasama verða einnig umræður í Háskóla Íslands með Intelligent Instruments Lab: Umræður með tónskáldum, sýnd dæmi um tölvustýrð orgelverk með Áka Ásgeirssyni listrænum stjórnanda HyperOrgel og tónskáldum sem taka þátt: Open Lab í Veröld Húsi Vigdísar föstudaginn 6. febrúar kl. 15:00-17:00
Áki Ásgeirsson er listrænn stjórnandi og Sveinn Ingi Reynisson fer neð tæknilega umsjón HyperOrgel í Hallgrímskirkju 2026.
Fleiri upplýsingar um HyperOrgel má finna
hér á Facebook viðburði HyperOrgel og Hallgrímskirkju:
HALLGRÍMSKIRKJA – ÞINN STAÐUR Á VETRARHÁTÍÐ
(Upplýsingar um dagskrá Vetrarhátíðar og ljóslistaverkin eru teknar af vefsíðu
Vetrarhátíðar)