Í dag er Alþjóðlegur geðheilbrigðisdagur unglinga (World Teen Mental Wellness Day)
2. mars 2026

Andleg líðan ungmenna skiptir máli
Alþjóðlegur geðheilbrigðisdagur unglinga er í dag, mánudaginn 2. mars 2026 (Teen Mental Wellness Day).
Á degi sem er helgaður andlegri heilsu ungmenna minnumst við þess að hver unglingur er dýrmætur, elskaður og skapaður af Guði. Lífið á unglingsárunum getur verið krefjandi og fullt af spurningum, þrýstingi og tilfinningum sem erfitt er að setja orð á.
Kirkjan er öruggt rými þar sem ungt fólk má vera það sjálft, tala opinskátt, efast, vona og finna huggun. Hér er pláss fyrir gleði og sorg, styrk og veikleika. Enginn þarf að ganga einn.
Við trúum því að trú, samfélag, hlustun og kærleikur geti verið uppspretta vonar og styrks. Við skorum á okkur sjálf að hlusta betur, styðja meira og minna ungmenni á að þau skipti máli. Nákvæmlega eins og þau eru.
Hjá prestum kirkjunnar er hægt að sækja sálgæslu fólki að kostnaðarlausu. Prestar starfa samkvæmt faglegum sjónarmiðum og siðareglum presta en eru ekki meðferðaraðilar.
Viðtöl við presta eru fyrir öll. Unga sem aldna og geta tengst sorgarferli eða áföllum, hjónaerfiðleikum, trúarglímu eða tilvistarspurningum. Þegar þörf þykir getur prestur gert tillögu um úrvinnslu mála eða meðferð.
Hægt er að panta samtal í gegn um tölvupóst eða síma:
Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir, prestur
Sr.Eiríkur Jóhannsson, prestur
HALLGRímSKIRKJA – ÞINN STAÐUR

