Ástin - ógnir og tækifæri

„Það er gott að elska“ söng þjóðpopparinn Bubbi. „All you need is love“ sungu Bítlarnir. „Kærleikurinn fellur aldrei úr gildi“ söng Páll postuli. Ástin er margvísleg, ást til maka, barna, foreldra, eigin sjálfs og náttúrunnar. Ást syngur í lífsgleði en líka í sorg. Í hádeginu á þriðjudögum í Hallgrímskirkju verður rætt um ástina í fjölskyldum, ógnir og tækifæri. Samverurnar verða kl. 12.10-13:00 í Suðursal kirkjunnar. Dagskrá á vegum Hallgrímskirkju og prestar kirkjunnar stýra samverunum.

4. október - Ástin, ógnir og tækifæri

Opið samtal. Fyrirlesarar í fræðsludagskránni Ástin - ógnir og tækifæri ræða um ástina og fjölskyldulífið: Vigfús Bjarni Albertsson, Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir, Valgerður Ólafsdóttir og Elín Sigrún Jónsdóttir. Samtalið verður það opið að fundarmenn geta tekið til máls og sagt sögur.