Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11.00 fjórða sunnudag í aðventu

18. desember 2015


Sunnudaginn 20. desember verður fjölskylduguðsþjónusta með jólasöngvum kl. 11.00 í Hallgrímskirkju.  Inga Harðardóttir  æskulýðsfulltrúi og sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir leiða stundina ásamt leiðtogum í barnastarfi kirkjunnar.  Tendrað verður á 4. aðventukertinu, Barna- og unglingakór Hallgrímskirkju syngur undir stjórn Ásu Valgerðar Sigurðardóttur.  Krakkar úr TTT starfi Hallgrímskirkju sýna jólaleikrit sem byggir á bókinni "Jólin hans Hallgríms" eftir Steinunni Jóhannesdóttur.  Organisti er Hörður Áskelsson.