Krílasálmar

29. apríl 2019


Krílasálmar á morgun, þriðjudaginn 30. apríl kl. 11:30 og verða út maí. Krílasálmar eru tónlistarstundir fyrir börn á aldrinum 3-18 mánaða og foreldra þeirra, þar sem tónlist, sálmar, þjóðlög og barnavísur eru notuð til að styrkja tengslamyndun og örva þroska barnanna. Það er sungið fyrir þau og spilað á hin ýmsu hljóðfæri, þeim vaggað, dansað með þeim og á þann hátt fá þau upplifun af tónlistinni sem hefur góð áhrif á tilfinninga- og hreyfiþroska þeirra. Þátttaka er ókeypis. Umsjón: Inga Harðardóttir, æskulýðsfulltrúi og Helga Vilborg Sigurjónsdóttir, tónmenntakennari.