Lakkríslax með sesam

29. janúar 2020
Við buðum fermingarungmennum og fjölskyldum þeirra í kvöldmat miðvikudaginn 29. janúar. Fyrst var byrjað með fræðslu í Norðursalnum og svo var haldið í Suðursal til máltíðar. Samverunni lauk í kirkjunni. Og af því aðalrétturinn er góður og nokkur spurðu um uppskriftina er hún hér að neðan.

Laxaflak bein- og roðflett og skorið í hæfileg stykki.

Blanda saman góðri ólívuolíu, tamarisósu og agave (hlutföllin 3 msk, 1 msk, 1 tsk – í þessari röð). Laxastykkin sett í blönduna og gjarnan látin standa í 1 klukkustund. Látið síðan drjúpa af fiskinum – en ekki þerra.

Stráið anísfræjum og sesamfræjum yfir og einnig salti – helst Maldon – og pipar að vild.

Lagt á rist í vel heitan ofn í 8 mínútur eða á grill í 4 mín – eða þar til fiskurinn er steiktur. (Líka hægt að setja í eldfast fat).

Meðlæti salat, steiktar kartöflur eða hrísgrjón eða bulgur. Nú svo er hægt að nota poleraða Vallanesbyggið – það er dásamlegt. Í kvöld var það kouskoussalat.

Köld jógúrt sósa með ferskum kryddjurtum, smá sítrónu, salti og pipar. Grísk jógurt hentar ágætlega. Sinnepssletta (t.d. hunangsdijon) má gjarnan líka fara í sósuna.

Þessi uppskrift hentar ágætlega fyrir alla aldurshópa og reynslan sýnir að börn og unglingar borða hana fúslega. Ég hef eldað þennan rétt fyrir tugi í fermingarfræðslu og foreldra fermingarungmenna. Sló í gegn ;).

Borðbæn: Þökkum Drottni því að hann er góður og miskunn hans varir að eilífu.