Rómantísk kór- og orgeltónlist
Mótettukór Hallgrímskirkju
Mótettukór Hallgrímskirkju heldur tónleika í samvinnu við Listvinafélag Hallgrímskirkju
sunnudag 10. mars 2019 kl.17 undir yfirskriftinni
Rómantísk kór- og orgeltónlist.
Þar flytur kórinn sérlega fallega efnisskrá með kórtónlist eftir
Bruckner, Mendelssohn og Brahms ásamt
Ástu Marý Stefánsdóttur sópransöngkonu og
Birni Steinari Sólbergssyni orgelleikara.
Stjórnandi er
Hörður Áskelsson.
Rómantíska tímabilið sem hófst skömmu eftir 1800 og lauk um aldamótin 1900 gat af sér ótrúlega falleg og innlifuð tónverk sem hafa staðist tímans tönn.
Á tónleikunum verða flutt nokkur tónverk frá þessu tímabili, bæði verk án undirleiks og í samleik með Klais orgelinu.
Má þar nefna mótetturnar
Richte mich Gott og
Herr nun lässest Du eftir Mendelssohns, ásamt tveimur mótettum eftir Brahms- "
Warum ist das Licht gegeben" og "
Geistliches Lied", sem verður flutt með Klaisorgelinu.
Kórinn flytur einnig tvær af þekktustu mótettum Bruchners,
Locus iste og
Christus factus est.
Ásta Marý Stefánsdóttir sópran syngur einsöng í
Hör mein Bitten ( Hear my prayer) eftir Mendelssohn ásamt kórnum og orgelinu. Einnig leikur
Björn Steinar Sólbergsson orgelsónötu nr. 6 eftir Mendelssohn, sem er tilbrigði um sálmalagið
Faðir vor, sem á himnum ert.
Þessi efnisskrá er sérlega metnaðarfull og full af fegurð og tilfinningum og gefst hér upplagt tækifæri fyrir unnendur fagurrar kórtónlistar að njóta stórkostlegrar tónlistar undir hvelfingum Hallgrímskirkju.
Mótettukór Hallgrímskirkju hefur um áratuga skeið verið meðal fremstu kóra Íslands. Verkefnalisti kórsins er langur og fjölskrúðugur og hefur kórinn farið í margar tónleikaferðir og sungið í helstu dómkirkjum Evrópu, auk þess sem hann hefur tekið þátt í tónlistarhátíðum og unnið til verðlauna í alþjóðlegum keppnum.
Stjórnandi kórsins frá upphafi er
Hörður Áskelsson, kantor Hallgrímskirkju.
Björn Steinar Sólbergsson er organisti við Hallgrímskirkju auk þess að vera skólastjóri Tónskóla þjóðkirkjunnar og hafa þeir báðir hlotið ýmsar viðurkenningar fyrir störf sín.
Ásta Marý Stefánsdóttir er kórfélagi í Mótettukórnum en hún vann fyrstu verðlaun í söngkeppninni Vox Domini 2018.
Almennt miðaverð er 3.900 kr og er miðasala í Hallgrímskirkju og á
MIDI.is og við innganginn, en afsláttur er til nemenda, eldri borgara og öryrkja og er miðaverð til þeirra 2500 kr.
listvinafelag.is, motettukor.is
Nánari upplýsingar veita Hörður Áskelsson s 693 6690 eða Katrín Sverrisdóttir formaður Mótettukórsins s. 694 7191.
Með kærum kveðjum f.h. Listvinafélags Hallgrímskirkju
Inga Rós Ingólfsdóttir framkvæmdastjóri
s: 696 2849