Fermingarstarfið í Hallgrímskirkju hefst 13. september

Fermingarstarfið í Hallgrímskirkju hefst miðvikudaginn 13. september. Enn er hægt að skrá sig (hér) . Frekari upplýsingar má finna á hallgrimskirkja.is

Hallgrímskirkja að hausti

Haustið hófst með glæsibrag í Hallgrímskirkju í ár og það er nóg að gerast þessa dagana. Enn streymir ferðafólk í kirkjuna og safnaðarstarfið er í fullum gangi. Meðfylgjandi myndir sem sýna kirkjuna á þessum fallegu haustdögum voru teknar af Sr. Eiríki Jóhannssyni.

Vetrarstarfið hafið í Hallgrímskirkju

Vetrarstarfið er hafið í Hallgrímskirkju. Hallgrímskirkja býður upp á fjölbreytt safnaðarstarf, helgihald og tónlistarlíf. Í vetur er margt um dýrðir og hér að neðan er yfirlit yfir almennt helgihald og safnaðarstarf auk viðburða á döfinni í október og nóvember:

Ástin, trúin og tilgangur

Í byrjun nóvember kemur út prédikanasafn dr. Sigurður Árna Þórðarsonar áður sóknarprests í Hallgrímskirkju. Í ritinu verða 78 prédikanir helstu helgidaga og hátíða ársins. Hallgrímskirkja styður þessa útgáfu.

Sunnudagaskólinn hefst 3. september

Sunnudagaskólinn hefst í Hallgrímskirkju 3. september kl. 11.00. Ragnheiður Bjarndóttir, Rósa Hrönn Árnadóttir, Kristný Rós Gústafsdóttir, Alvilda Eyvör Elmarsdóttir, Erlendur Snær Erlendsson og Lára Ruth Clausen bjóða alla krakka velkomna í fjölbreytt og vandað sunnudagaskólastarf. Sunnudagaskólastarf er sprotastarf í kirkjunni fyrir krakka á öllum aldri í fylgd með fullorðnum eða góðum vinum.

Grétar Einarsson hefur hafið störf sem kirkjuhaldari

Sóknarnefnd Hallgrímskirkju hefur samið við Grétar Einarsson, sem gegnt hefur starfi yfirkirkjuvarðar, um að taka að sér auknar skyldur sem kirkjuhaldari frá og með 1. ágúst síðstliðnum

HAUSTTÓNLEIKARÖÐ Í HALLGRÍMSKIRKJU

Frábær tónleikaröð framundan Haust í Hallgrímskirkju 2023.

Sálmafoss og Barnafoss á Menningarnótt í Hallgrímskirkju

Sálmafoss & Barnafoss á Menningarnótt í Hallgrímskirkju 2023

Frobenius kórorgelið endurbyggt