Íslensk orgeltónlist í brennidepli – Nýr geisladiskur Björns Steinars Sólbergssonar organista Hallgrímskirkju er kominn í hús
14. apríl 2026
Diskurinn ber nafnið Íslensk orgeltónlist og spannar hann bæði eldri og nýrri verk sem endurspeglar ríka orgeltónlistarhefð landsins.
Nýr geisladiskur með Birni Steinari Sólbergssyni, organista og tónlistarstjóra okkar í Hallgrímskirkju, er kominn í hús.
Á disknum flytur Björn Steinar bæði orgelumritanir á verkum lykiltónskálda á borð við Sveinbjörn Sveinbjörnsson, Pál Ísólfsson og Jón Leifs, sem og nýrri verk eftir glæsileg samtímatónskáld.
Hljóðritunin fór fram í Hallgrímskirkju þar sem hið glæsilega Klais-orgel kirkjunnar nýtur sín til fulls.
Björn Steinar hefur um áratugaskeið verið í fremstu röð íslenskra organista og hefur haldið tónleika víða um heim auk þess að sinna umfangsmiklu upptökustarfi.
Á meðfylgjandi mynd afhendir Ásmundur Jónsson hjá Smekkleysu Birni Steinari fyrsta eintak disksins.
Innilega til hamingju Björn Steinar.