Íslenskir frumflutningar og „Himnesk gleði“ á Orgelsumri í Hallgrímskirkju um helgina

14. júlí 2026

Íslenskir frumflutningar og „Himnesk gleði“ á Orgelsumri í Hallgrímskirkju

Orgelsumar í Hallgrímskirkju heldur áfram um helgina með tveimur glæsilegum tónleikum sem endurspegla fjölbreytileika orgeltónlistar – frá nýrri íslenskri tónsköpun og þjóðlagaarfi til stórbrotinna síðrómantískra meistaraverka Evrópu.


Magnús Ragnarsson – laugardagur 18. júlí kl. 12

Á hádegistónleikunum á laugardag sest við orgelið Magnús Ragnarsson, organisti Langholtskirkju, kórstjóri, tónskáld og kennari. Magnús hefur um árabil verið einn af fremstu kirkjutónlistarmönnum landsins og hefur markað sér sérstöðu sem flytjandi, stjórnandi og tónskáld.


Efnisskráin samanstendur eingöngu af verkum sem Magnús hefur samið og/eða útsett. Á tónleikunum verða frumflutt tvö ný orgelverk, Upphaf og Guðs lamb, auk verksins Sending. Jafnframt flytur hann eigin útsetningar á nokkrum af ástsælustu íslensku þjóðlögunum, meðal annars Vera mátt góður, Nú vil ég enn í nafni þínu, Ísland, farsælda frón, Kvölda tekur, sest er sól, Máninn hátt á himni skín og Ég að öllum háska hlæ.


Þetta verða persónulegir og fjölbreyttir tónleikar þar sem íslenskur tónlistararfleifð mætir nýrri sköpun á einstakan hátt.


Andreas Jetter – sunnudagur 19. júlí kl. 17

Á sunnudaginn tekur Andreas Jetter, dómorganisti og tónlistarstjóri við dómkirkjuna í Chur í Sviss, við Klais-orgelinu í Hallgrímskirkju.


Jetter hefur komið fram sem organisti, píanóleikari og hljómsveitarstjóri víðs vegar um Evrópu og hefur hlotið alþjóðlega viðurkenningu fyrir túlkun sína á síðrómantískri orgeltónlist. Hann hefur jafnframt unnið ötullega að því að endurvekja og kynna tónverk sem sjaldan heyrast á tónleikapöllum.

Efnisskráin ber yfirskriftina „Himnesk gleði“ og býður upp á ferðalag um síðrómantíska orgeltónlist. Þar má meðal annars heyra orgelútsetningu Jetters sjálfs á fyrsta þætti sinfóníu Hans Rotts, stórbrotna Chaconne í cís-moll eftir Franz Schmidt, auk verka eftir Dezső Antalffy-Zsiross og William Thomas Best.



Tónleikarnir eru einstakt tækifæri til að heyra einn af fremstu organistum Sviss leika á hið einstaka Klais-orgel Hallgrímskirkju.

Við hlökkum til að taka á móti gestum um helgina á Orgelsumri í Hallgrímskirkju.


HALLGRÍMSKIRKJA – ÞINN TÓNLEIKASTAÐUR


--ENGLISH--


Icelandic World Premieres and “Heavenly Joys” at Organ Summer at Hallgrímskirkja

This weekend, Organ Summer at Hallgrímskirkja presents two inspiring concerts showcasing the remarkable breadth of organ music, from newly composed Icelandic works and folk traditions to the grandeur of the European late-Romantic repertoire.


Magnús Ragnarsson – Saturday, July 18 at 12:00

Saturday's lunchtime recital features Magnús Ragnarsson, Organist of Langholtskirkja in Reykjavík, as well as a distinguished conductor, composer, arranger, and teacher. One of Iceland's leading church musicians, Ragnarsson has made an important contribution to Icelandic musical life through his work as both performer and educator.

The programme consists entirely of works composed and/or arranged by Ragnarsson. The audience will hear the world premieres of Upphaf and Guðs lamb, together with Sending, alongside his imaginative organ arrangements of beloved Icelandic folk melodies.


The recital offers a unique opportunity to experience contemporary Icelandic organ music alongside fresh interpretations of the country's rich musical heritage.


Andreas Jetter – Sunday, July 19 at 17:00

On Sunday afternoon, Andreas Jetter, Director of Music and Cathedral Organist at Chur Cathedral in Switzerland, takes to the magnificent Klais organ of Hallgrímskirkja.


Jetter enjoys an international reputation as an organist, pianist, and conductor. He is particularly known for his commitment to rediscovering and performing overlooked masterpieces of the late-Romantic period, many of which he has recorded to critical acclaim.


His programme, "Heavenly Joys," explores the rich colours and symphonic possibilities of the organ. Highlights include Jetter's own transcription of the opening movement of Hans Rott's Symphony in E major, Franz Schmidt's monumental Chaconne in C-sharp minor, and works by Dezső Antalffy-Zsiross and William Thomas Best.


This concert offers audiences the chance to hear one of Switzerland's distinguished concert organists perform on Hallgrímskirkja's celebrated Klais organ.


We look forward to welcoming audiences to another inspiring weekend of Organ Summer at Hallgrímskirkja.


HALLGRÍMSKIRKJA – YOUR PLACE IN REYKJAVÍK