Jólin hans Hallgríms í Hallgrímskirkju
9. desember 2025

Sýningin Jólin hans Hallgríms er hafin og nú streyma aftur leik- og grunnskólabörn í Hallgrímskirkju á aðventunni.
Mikil gleði ríkir í kirkjunni þegar börnin fá að sjá, og sum einnig að heyra, hið stórbrotna Klais-orgel kirkjunnar, skoða kirkjumuni og hlýða á sýningu í baðstofu sem sett er upp ár hvert sérstaklega fyrir þessa upplifun.
Sýningin er byggð á samnefndri bók Steinunnar B. Jóhannesdóttur, og fá börnin þar að kynnast jólaanda fyrri alda. Börnin fá að skyggnast inn í jólastemningu fyrir um 400 árum, þegar Hallgrímur Pétursson var ungur drengur og jólin höfðu allt annan svip en í dag.
Opið er fyrir bókanir fyrir leik- og grunnskólahópa á aldrinum 3–10 ára ásamt kennurum á Abler.io.
HALLGRÍMSKIRKJA – STAÐUR BARNANNA

Mynd: Hér taka leikararnir Níels Thibaud Girerd og Pálmi Freyr Hauksson á móti skólahópi í Suðursal Hallgrímskirkju.