Kirkjubygging í mótun – Kirkjubyggingar Guðjóns Samúelssonar
23. mars 2026

Síðasti fyrirlesturinn í röð fræðsluerindanna „Kirkjubygging í mótun“ í Hallgrímskirkju verður á morgun, þriðjudaginn 24. mars á milli kl 12-13.
Pétur Ármannsson arkitekt fjallar um „Kirkjubyggingar Guðjóns Samúelssonar“
Í erindinu verður rakin þróun kirkjubygginga Guðjóns, allt frá fyrstu tillögu að kirkju á Skólavörðuholti árið 1916 til hugmynda hans um form og byggingarstíl núverandi Hallgrímskirkju.
Léttar hádegisveitingar eru í boði.
Ókeypis aðgangur og öll hjartanlega velkomin.
HALLGRÍMSKIRKJA – ÞINN STAÐUR