Kór Hallgrímskirkju á Spotify / The Choir of Hallgrímskirkja's first publication on Spotify
21. maí 2026

Kór Hallgrímskirkju gefur út „Á hvítasunnudag“
/ The Choir of Hallgrímskirkja releases “Pentecost Sunday”

Í dag, 21. maí 2026, kom út fyrsta lag Kórs Hallgrímskirkju á streymisveitum. Verkið Á hvítasunnudag er eftir Finn Karlsson við texta eftir Einar Sigurðsson í Eydölum.
Útgáfan er liður í því að gera tónlistarstarf Hallgrímskirkju aðgengilegt á nýjum miðlum og gefa fleiri tækifæri til að njóta þess fjölbreytta tónlistarstarfs sem fram fer innan kirkjunnar.
Verkið er gefið út í aðdraganda Hvítasunnu og mun Kór Hallgrímskirkju einnig flytja það í hátíðarmessu á Hvítasunnudag í Hallgrímskirkju. Messunni verður útvarpað í beinni útsendingu á Rás 1.
Kór Hallgrímskirkju var stofnaður haustið 2021 og telur um 70 manns. Kórinn hefur á stuttum tíma skapað sér sterka sérstöðu í íslensku tónlistarlífi með metnaðarfullum flutningi kirkjutónlistar og fjölbreyttu tónleikahaldi og leggur áherslu á listræn gæði og lifandi tónlistarsköpun þar sem hefð og nýsköpun mætast.
Á hvítasunnudag markar jafnframt nýtt skref í starfi kórsins sem fyrsta lag kórsins sem gefið er út og endurspeglar þann metnað að gera tónlist ´i flutningi Kórs Hallgrímskirkju aðgengilega fyrir breiðari hóp hlustenda innanlands sem utan.
Steinar Logi Helgason er stjórnandi Kórs Hallgrímskirkju.
Við bjóðum ykkur að ýta á ÞESSA SMELLU og hlusta.
--ENGLISH--
Today, May 21st 2026, The Choir of Hallgrímskirkja releases its first song on social media. The piece, Pentecost Sunday (in Icelandic: Á hvítasunnudag), is composed by Finnur Karlsson with lyrics by Einar Sigurðsson í Eydölum.
This release is part of Hallgrímskirkja’s effort to make its musical life more accessible through new platforms and to share the rich musical tradition of Iceland and the church with wider audiences.
The piece is released in anticipation of Pentecost and will also be performed during the Festive Pentecost Service at Hallgrímskirkja this coming Sunday, 24th of May at 11:00. The service is also broadcasted live on Rás 1.
The song can be found HERE
We invite you to listen and enjoy!