Kristsmyndir Snorra Sveins „komnar heim“

28. október 2026

This is a subtitle for your new post

Þrjár vatnslitamyndir eftir Snorra Svein Friðriksson, þar sem myndefnið er Kristur á krossinum, voru afhentar Hallgrímskirkju að gjöf í tilefni af 40 ára vígsluafmæli kirkjunnar. Þessar myndir voru gerðar að beiðni Listvinafélags Hallgrímskirkju í tilefni fyrstu Kirkjulisthátíðar sem haldin var á vígsluári kirkjunnar. Myndirnar voru sýndar í forkirkjunni og vöktu mikla athygli á sínum enda áhrifamiklar.

 

Það var ekkja listamannsins, Dagný Gísladóttir, sem afhenti verkin þriðjudaginn 27. október, með sérstöku gjafabréfi. Einar Karl Haraldsson, formaður sóknarnefndar, tók við bréfinu og sagði við það tækifæri að myndir Snorra Sveins af Kristi á krossinum væru kunnuglegar enda hefðu þær verið notaðar í kyningarefni kirkjunnar og nú þætti kirkljufólki sem þær væru komnar heim. Myndirnar þrjár eru til sýnis í Suðursal Hallgrímskirkju ásamt tveimur vatnslitamyndum Karolínu Lárusdóttur.

 

Snorri Sveinn Friðriksson var fæddur á Sauðárkróki árið 1934. Hann stundaði nám í Myndlistaskóla Reykjavíkur og Myndlista-og handíðaskóla Íslands en fór síðan í framhaldsnám við Konstfack í Stokkhólmi. Hann hélt fjórar einkasýningar og tók þátt í fjölda samsýninga, bæði hérlendis og erlendis. Ennfremur gerði hann margar veggskreytingar á ýmsar opinberar byggingar og leikmyndir fyrir Þjóðleikhúsið. Snorri Sveinn starfaði lengst af sem forstöðumaður leikmyndadeildar Sjónvarpsins. Hann lést árið 1999.

 

__________________________________________________________________________________________________________________

Dagný Gísladóttir færir Einari Karli Haraldssyni gjafabréf en í baksýn er ein mynda Snorra Sveins Friðrikssonar í Suðursal Hallgrímskirkju. Myndina tók Þorvaldur Karl Helgason.