Kynningarfundur fyrir foreldra og fermingarbörn sunnudaginn 13. september eftir messu
8. september 2026

Kynningarfundur um fermingarfræðslu 2026–2027 verður í Hallgrímskirkju þann 16. september 2026 að lokinni messu sem hefst kl. 11:00.
Foreldrum og fermingarungmennum er boðið á kynningarfund um fermingarfræðslu Hallgrímskirkju fyrir veturinn 2026–2027.
Fermingarfræðslan er ætluð ungmennum í 8. bekk sem hafa ákveðið eða eru að velta fyrir sér að fermast vorið 2027. Veturinn verður fjölbreyttur og skemmtilegur, með samtölum, fræðslu, messum, upplifun og ævintýraferð í Vatnaskóg.
Fermingardagur í Hallgrímskirkju 2027
Fyrirhugaður fermingardagur vorið 2026 er sunnudaginn 4. apríl kl. 11:00.
Nánari upplýsingar veita prestar Hallgrímskirkju.
- Irma Sjöfn Óskarsdóttir 771 8200 irma@hallgrimskirkja.is
- Eiríkur Jóhannsson 864 0802 eirikur@hallgrimskirkja.is
Kennsla hefst þriðjudaginn 6. október kl. 15:00 í Hallgrímskirkju.
Verð fyrir fræðsluna er 26.188 krónur og er innifalið í gjaldinu kennslan yfir veturinn, vettvangsferðir og létt hressing í tímum.
Skráning fer fram HÉR á heimasíðu Hallgrímskirkju og á abler.io
Verið hjartanlega velkomin!
HALLGRíMSKIRKJA – ÞINN STAÐUR