Messuþjónafundur – Þakkir fyrir 20 ára þjónustu

19. október 2026

Messuþjónafundur í Hallgrímskirkju

Þann 23. september síðastliðinn var gleðifundur hér í kirkjunni.
Saman komu sjálfboðaliðar í Hallgrímskirkju sem sinna messuþjónustu, og kallast messuþjónar. 


Hvern helgan dag er hópur sjálfboðaliða sem þjónar við messuna. Þeir taka á móti þeim sem til messunnar koma, rétta bækur og blöð og brosa til þeirra sem koma til kirkju. Þeir bera inn ljós og kross og ganga á undan hópi þeirra sem þjóna við messuna, prestum, tónlistarfólki og barnastarfsfólki.

Ritningarlestur er í þeirra höndum, þau leiða almenna kirkjubæn og taka þátt í útdeilingu.


Sr. Eiríkur Jóhannsson, prestur í Hallgrímskirkju, bauð messuþjóna velkomna og hafði orð á því í upphafi að eins og gæði og verðmæti hefðu fylgt góðum kirkjujörðum hér áður þá væru messuþjónar í raun hlunnindi þessari kirkju. Svo dýrmæt og mikilvæg er öll þeirra þjónusta. 


Í ár, 2026, fögnum við 20 ára starfsafmæli messuþjónustunnar hér í Hallgrímskirkju. Á bak við hana eru hugmyndir og fræði sem fengin eru frá Fredrik Modeus, sem er núverandi biskup í Växsjö-biskupsdæmi í Svíþjóð en hann kom hingað til lands árið 2007 til þess að kynna þetta starf sem hefur aukið verulega kirkjusóknina hjá honum þegar hann þjónaði sem prestur. Áður höfðu íslenskir prestar kynnst þessu fyrirkomulagi og vildu gjarnan koma á þessari þjónustu í þjóðkirkjunni. 


Síðan var það sr. Jón Dalbú Hróbjartsson, fyrrum sóknarprestur í Hallgrímssókn, sem var forgöngumaður um að koma á þessu fyrirkomulagi hér í Hallgrímssókn. Áður hafði sóknarnefndarfólk og sjálfboðaliðar annast lestra í helgihaldinu.


Það hefur verið farsælt að njóta þjónustu hópanna við messur hér í Hallgrímskirkju. Heyra fallegan lestur, taka við sakramenti sem rétt er fram eða fá bros þegar gengið er inn í kirkjuna og hlýlegt viðmót. Vandvirkni og hlýja eru aðalsmerki þjónustunnar.


Enn er rými fyrir fleiri í hópunum, og kannski er gott að enda á að hvetja fólk sem sækir helgihald í Hallgrímskirkju og langar til að vera með í hópi messuþjóna til að gefa sig fram við presta kirkjunnar eða þau sem eru messuþjónar.


HALLGRÍMSKIRKJA – ÞINN STAÐUR