Kirkjubygging í mótun - Hádegisfyrirlestur í dag 10. mars
10. mars 2026

Hádegisfyrirlestrar í Hallgrímskirkju á þriðjudögum
Á þriðjudögum kl. 12.00–13.00 er boðið upp á fræðandi fyrirlestra í Hallgrímskirkju.
Kirkjubygging í mótun
Að þessu sinni tengjast fyrirlestrarnir 40 ára vígsluafmæli Hallgrímskirkju. Fjallað verður um byggingarsögu kirkjunnar og sérstæði hennar. Einnig verður fjallað um guðfræðilegan merkingarheim kirkjubygginga almennt.
Einnig verður fjallað um hljóðheim Hallgrímskirkju, tónlistina sem tengist kirkjunni og Hallgrímssöfnuði.
Í dag þriðjudaginn 10. mars fjallar dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson, prestur um kirkjubygginguna: Augljóst en hulið, þar sem hann fjallar um kirkjubygginguna sem táknheim.
Aðgangur er ókeypis og boðið upp á létta hádegishressingu.
Öll hjartanlega velkomin.
Hér eru upplýsingar um viðburðinn: Kirkjubygging í mótun – Augljóst en hulið
Fyrir áhugasama er hér að neðan einnig viðtal við Dr. Sigurjón Árna á vefsíðunni Lifðu núna um bókina sem hann gaf út og fleira: https://lifdununa.is/grein/kirkjur-auka-lifsgledina/
HALLGRÍMSKIRKJA – ÞINN STAÐUR