Ný geislaplata Björns Steinars Sólbergssonar
29. júní 2026

Ný geislaplata: Íslensk orgeltónlist
Í apríl í ár kom út ný geislaplata Björns Steinars Sólbergssonar, Íslensk orgeltónlist, sem hljóðrituð var á Klais-orgeli Hallgrímskirkju.
Platan dregur upp lifandi mynd af þróun íslenskrar orgeltónlistar, allt frá fyrstu frumkvöðlum hennar til samtímatónskálda. Þar má meðal annars heyra orgelútsetningar Björns Steinars á verkum Sveinbjörns Sveinbjörnssonar, Páls Ísólfssonar og Jóns Leifs, auk nýrrar tónlistar eftir Hildigunni Rúnarsdóttur, Sigurð Sævarsson og Steingrím Þórhallsson. Lokahluti plötunnar er helgaður sálmforspilum sem tengjast Hallgrími Péturssyni og Passíusálmunum.
Geislaplatan er fáanleg í kirkjubúð Hallgrímskirkju og í helstu plötuverslunum landsins. Hún verður einnig aðgengileg á streymisveitum í júlí.
Myndbandið hér að ofan gefur forsmekkinn að þeirri hljómfegurð sem platan hefur upp að bjóða Þar flytur Björn Steinar Sólbergsson, tónlistarstjóri og organisti Hallgrímskirkju, hið ljóðræna Intermezzo eftir Pál Ísólfsson, eitt af ástsælustu tónskáldum íslenskrar tónlistarsögu. Verkið nýtur sín einstaklega vel á Klais-orgelinu, þar sem hlýir tónlitir og fjölbreyttir möguleikar hljóðfærisins skapa áhrifamikla túlkun.
Útgáfutónleikar plötunnar verða haldnir í Hallgrímskirkju 27. september kl. 17:00.
Myndband: Þorgrímur Þorsteinsson