Ný geislaplata Björns Steinars Sólbergssonar – Orgelsumar og myndband
29. júní 2026

Ný geislaplata: Íslensk orgeltónlist
Í apríl í ár kom út ný geislaplata Björns Steinars Sólbergssonar, Íslensk orgeltónlist, sem hljóðrituð var á Klais-orgeli Hallgrímskirkju.
Platan dregur upp lifandi mynd af þróun íslenskrar orgeltónlistar, allt frá fyrstu frumkvöðlum hennar til samtímatónskálda. Þar má meðal annars heyra orgelútsetningar Björns Steinars á verkum Sveinbjörns Sveinbjörnssonar, Páls Ísólfssonar og Jóns Leifs, auk nýrrar tónlistar eftir Hildigunni Rúnarsdóttur, Sigurð Sævarsson og Steingrím Þórhallsson. Lokahluti plötunnar er helgaður sálmforspilum sem tengjast Hallgrími Péturssyni og Passíusálmunum.
Geislaplatan er fáanleg í kirkjubúð Hallgrímskirkju og í helstu plötuverslunum landsins. Hún verður einnig aðgengileg á streymisveitum í júlí.
Myndbandið hér að ofan gefur forsmekkinn að þeirri hljómfegurð sem platan hefur upp að bjóða Þar flytur Björn Steinar Sólbergsson, tónlistarstjóri og organisti Hallgrímskirkju, hið ljóðræna Intermezzo eftir Pál Ísólfsson, eitt af ástsælustu tónskáldum íslenskrar tónlistarsögu. Verkið nýtur sín einstaklega vel á Klais-orgelinu, þar sem hlýir tónlitir og fjölbreyttir möguleikar hljóðfærisins skapa áhrifamikla túlkun.
Útgáfutónleikar plötunnar verða haldnir í Hallgrímskirkju 27. september kl. 17:00.
Myndband: Þorgrímur Þorsteinsson
Orgelsumar 2026 í Hallgrímskirkju – Orgeltónlistarhátíð í hjarta Reykjavíkur

Þegar sumarið stendur sem hæst fyllist Hallgrímskirkja af hljómum eins glæsilegasta hljóðfæris landsins.
Frá 5. júlí til 23. ágúst verður boðið upp á Orgelsumar 2026, þar sem margir fremstu íslenskra og erlendra organistar flytja fjölbreytta tónleikadagskrá á hið víðfræga Klais-orgeli og hinu fallega Frobenius-orgeli Hallgrímskirkju.
Tónleikar fara fram á laugardögum kl. 12:00 og sunnudögum kl. 17:00, þar sem gestum gefst einstakt tækifæri til að upplifa stórbrotna orgeltónlist í hljómburði kirkjunnar. Á efnisskránni eru sígild meistaraverk, íslensk orgeltónlist og nýrri verk í flutningi listamanna frá Íslandi, Frakklandi, Þýskalandi, Sviss, Danmörku og Bandaríkjunum.
Glæsilegir opnunartónleikar
Orgelsumarið hefst sunnudaginn 5. júlí kl. 17:00 með tónleikunum Fjórhent og fjórfætt, þar sem organistar Hallgrímskirkju, Björn Steinar Sólbergsson og Steinar Logi Helgason, leika á bæði orgel kirkjunnar. Á dagskránni eru meðal annars verk eftir Eugène Gigout, Johann Pachelbel, Jón Nordal og Maurice Ravel.
Miðasala á Orgelsumar fer fram í Hallgrímskirkju og á https://tix.is/venue/2069 og er aðgangseyrir 4.300 kr.
Orgelmaraþon á Menningarnótt
Á Menningarnótt, laugardaginn 22. ágúst kl. 14:00–18:00, verður hið vinsæla Orgelmaraþon, þar sem kirkjan verður opin öllum gestum. Fjöldi organista kemur fram yfir daginn og sérstök dagskrá verður fyrir börn frá kl. 14:00–16:00. Aðgangur er ókeypis og öll velkomin.
Hátíðinni lýkur með svissneskum gesti
Lokatónleikar hátíðarinnar fara fram sunnudaginn 23. ágúst kl. 17:00, þegar svissneski organistinn Christian Barthen, organisti við Bern Münster, flytur glæsilega tónleikadagskrá sem lýkur Orgelsumri 2026 með eftirminnilegum hætti.
Verið velkomin í Hallgrímskirkju
Orgelsumar í Hallgrímskirkju hefur um árabil verið einn af glæsilegustu menningarviðburðum sumarsins í Reykjavík og laðar ár hvert að sér tónlistarunnendur, heimafólk og ferðamenn sem vilja upplifa einstakan hljóm orgela kirkjunnar.
Miðar eru seldir í móttöku Hallgrímskirkju og á Tix.is þar sem einnig má finna nánari upplýsingar um einstaka tónleika hátíðarinnar.
Við hlökkum til að taka á móti ykkur í Hallgrímskirkju í sumar.