Nýr kórstjóri Barnakórs Hallgrímskirkju tekur við

27. ágúst 2026

Nýr kórstjóri Barnakórs Hallgrímskirkju – Skráning hafin á Abler

Við erum einstaklega glöð að kynna Stefán Nordal sem nýjan kórstjóra Barnakórs Hallgrímskirkju og tekur hann við af okkar frábæru Fjólu Kristínu Nikulásdóttur sem stjóranði kórnum á síðasta ári.

Stefán hefur mikla reynslu af kórastarfi og tónlist. Hann lærði á píanó við Tónlistarskóla Seltjarnarness og útskrifaðist frá Menntaskólanum í Tónlist. Hann hefur sungið með Kammerkórnum Huldur, Hamrahlíðakórnum og Ægissif og starfað sem kórstjóri í söngleikjum og tónlistarkennari í leikskóla.

Stefán hlakkar sérstaklega til að vinna með börnum enda séu þau „Skapandi, forvitin og óhrædd að prófa sig áfram.“

Markmið hans er að skapa öruggt, skemmtilegt og samheldið söngsamfélag þar sem börnin fá að njóta sín og kynnast fjölbreyttri tónlist.

Í vetur er meðal annars stefnt að þátttöku í fjölskylduguðsþjónustu, nokkrum viðburðum m.a. Söngvahátíð barnanna og söng á aðventunni.


Kórinn er ætlaður börnum á aldrinum 8-11 ára.
Æfingar verða á miðvikudögum  kl. 16:30–17:30 í Norðursal Hallgrímskirkju

Staðfestingargjald er 5.900 kr.
Innifalið í gjaldinu er sérhannaður Barnakór Hallgrímskirkju-bolur.

Skráning í Barnakór Hallgrímskirkju fer fram í Abler.
Ert þu með söngelskt barn sem hefur gaman af tónlist og að syngja með öðrum? Þá er Barnakór Hallgrímskirkju rétti staðurinn!
Skráning er hafin á
Abler.io


HALLGRÍMSKIRKJA – STAÐUR BARNANNA