Önnur helgi Orgelsumars í Hallgrímskirkju / Second weekend of The Organ Summer at Hallgrímskirkja 2026

9. júlí 2026

Önnur helgi Orgelsumars í Hallgrímskirkju – íslenskur dómorganisti og franskur heimslistamaður


Orgelsumar í Hallgrímskirkju er komið vel af stað og um aðra tónleikahelgi sumarsins býður kirkjan upp á tvo afar ólíka en glæsilega orgeltónleika. Á dagskránni eru annars vegar íslenskur dómorganisti sem hefur sameinað tónlist og vélfræði á einstakan hátt og hins vegar einn fremsti franski orgelleikari samtímans.


Matthías Harðarson dómorganisti á hádegistónleikum laugardagsins

Laugardaginn 11. júlí kl. 12:00 fáum við Matthías Harðarson, dómorganista við Dómkirkjuna í Reykjavík, og kemur hann fram á 30 mínútna hádegistónleikum Orgelsumars.


Matthías hóf tónlistarnám í Vestmannaeyjum þar sem hann lærði píanó og saxófón áður en orgelið varð hans aðalhljóðfæri. Hann hefur lokið kirkjuorganista- og kantorsprófi auk meistaragráðu í kirkjutónlist frá Konunglega tónlistarháskólanum í Árósum. Samhliða tónlistarnámi lauk hann einnig námi í vélfræði og hefur því einstakan bakgrunn sem bæði vélstjóri og organisti.

Á tónleikunum flytur hann verk eftir Searle WrightJohann Sebastian Bach og Maurice Duruflé; efnisskrá sem spannar allt frá barokki til franskrar orgeltónlistar 20. aldarinnar.


Laugardagur 11. júlí kl. 12:00–12:30
Matthías Harðarson – Dómkirkjan í Reykjavík

Miðar fást í móttöku Hallgrímskirkju og á https://tix.is/event/21619/


David Cassan – einn fremsti orgelleikari Frakklands á sunnudagstónleikum

Sunnudaginn 12. júlí kl. 17:00 fáum við franska orgelsnillingsinn David Cassan, sem hefur á undanförnum árum skipað sér í fremstu röð orgelleikara sinnar kynslóðar.


Cassan hefur hlotið fjölda alþjóðlegra verðlauna og komið fram víðs vegar um heim. Frá árinu 2025 hefur hann verið aðalorganisti við hina sögufrægu kirkju Saint-Étienne-du-Mont í París, þar sem Maurice Duruflé starfaði um áratugaskeið.

Á efnisskránni eru verk eftir Maurice DurufléHenri DallierFranz Liszt og Thierry Escaich, en tónleikunum lýkur með frjálsum spuna, þeirri listgrein sem hefur gert David Cassan að einum eftirsóttasta orgelleikara Evrópu.


Sunnudagur 12. júlí kl. 17:00–18:00
David Cassan – Saint-Étienne-du-Mont, París

Miðar fást í móttöku Hallgrímskirkju og á https://tix.is/event/21621/


Orgelsumar í Hallgrímskirkju

Orgelsumar í Hallgrímskirkju hefur um árabil verið einn af helstu tónlistarviðburðum sumarsins í Reykjavík. Þar koma fram framúrskarandi organistar frá Íslandi og víða að úr heiminum og flytja orgeltónlist á hið heimsþekkta Klais-orgeli Hallgrímskirkju og hið hljómfagra Frobenius-kórorgel kirkjunnar.


Við hlökkum til að taka á móti gestum um helgina og bjóðum öll hjartanlega velkomin.


Hallgrímskirkja – Þinn tónleikastaður


--ENGLISH--


Organ Summer continues with two outstanding concerts this weekend

The second weekend of Organ Summer at Hallgrímskirkja presents two contrasting and exceptional concerts featuring distinguished organists from Iceland and France.


On Saturday, 11 July at 12:00, Reykjavík Cathedral Organist Matthías Harðarson performs a lunchtime recital with music by Searle Wright, Johann Sebastian Bach and Maurice Duruflé.


On Sunday, 12 July at 17:00, internationally acclaimed French organist David Cassan, titular organist of Saint-Étienne-du-Mont in Paris, presents a programme featuring works by Duruflé, Dallier, Liszt and Escaich, concluding with one of his celebrated improvisations.


Both concerts take place in Hallgrímskirkja. Tickets are available at the church reception and on https://tix.is/venue/2069


HALLGRÍMSKIRKJA – YOUR PLACE IN REYKJAVÍK