Organisti Hallgrímskirkju flutti tónleika í Notre-Dame í París

1. maí 2026

Björn Steinar Sólbergsson organisti og tónlistarstjóri Hallgrímskirkju flutti glæsilega tónleika í Notre-Dame í París sl. sunnudag.

Það var stór stund í tónlistarlífi okkar í Hallgrímskirkju þegar organisti og tónlistarstjóri kirkjunnar, Björn Steinar Sólbergsson, flutti glæsilega tónleika í Notre-Dame í París síðastliðinn sunnudag 26. apríl 2026.


Að fá boð um að leika á þetta sögufræga hljóðfæri í einni frægustu dómkirkju heims er heiður sem aðeins fremstu organistar hljóta og undirstrikar þá stöðu sem Björn Steinar hefur skapað sér á alþjóðlegum vettvangi.


Efnisskráin var bæði vönduð og persónuleg, þar sem hann fléttaði saman franskri og íslenskri orgeltónlist. Tónleikarnir hófust á kraftmiklu verki eftir Louis Vierne, fyrrum organista Notre Dame, Hymne au Soleil, sem setti tóninn í hinum magnaða rými dómkirkjunnar. Í kjölfarið fylgdi verk Sigurðar Sævarssonor, Himna smiður og verk Báru Grímsdóttur, Sálmurinn um Maríu mey og L'hymne à la Vierge Marie, sem öll nutu sín vel í rými kirkjunnar. Þá flutti Björn Steinar einnig hið glæsilega verk Fantasía yfir Gefðu að móðurmálið mitt eftir Daníel Þorsteinsson og þar á eftir tónlist Páls Ísólfssonar, eins helsta frumkvöðuls íslenskrar orgellistar. Máríuvers & Prière à Notre Dame í útsetningu Hauks Guðlaugssonar, sem var kennari Björns Steinars og mikill áhrifavaldur í hans lífi, auk Burlesca & Intermezzo, sem Björn Steinar sjálfur færði yfir á orgel af mikilli næmni. Tónleikunum lauk svo með einu þekktasta verki frönsku orgeltónlistarhefðarinnar, Carillon de Westminster eftir Vierne, þar sem dómkirkjan fylltist kirkjuklukknahljómi Westminster kirkjunnar með sérstaklega glæsilegum lokakafla og lauk tónleikunum með miklu lófaklappi.

Organistinn okkar var í miklu stuði og stóð sig frábærlega en þessi tónleikaferð er ekki aðeins persónulegur sigur fyrir Björn Steinar, heldur einnig mikilvæg kynning á íslenskri tónlist og orgelhefð á einum virtasta tónleikastað Evrópu.


Við í Hallgrímskirkju erum afar stolt af organistanum okkar og þakklát fyrir að hann beri íslenska tónlist og menningu svo fagurlega út í heiminn.


Við óskum Birni Steinari til hamingju með glæsilega tónleika.