Orgelandakt á uppstigningardag í Hallgrímskirkju kl. 11:00

13. maí 2026

L’Ascension eftir Olivier Messiaen

Fimmtudaginn 14. maí 2026 kl. 11:00

Á uppstigningardag, fimmtudaginn 14. maí kl. 11:00, verður orgelandakt í Hallgrímskirkju þar sem Björn Steinar Sólbergsson organisti og tónlistarstjóri kirkjunnar flytur verkið L’Ascension eftir franska tónskáldið Olivier Messiaen (1908–1992). Prestur stundarinnar er sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir.


L’Ascension eða Uppstigning Krists er eitt af fyrstu stórvirkjum Messiaens og telst meðal áhrifamestu orgelverka 20. aldarinnar. Verkið samanstendur af fjórum hugleiðingum sem lýsa uppstigningu Krists með djúpum og ljóðrænum hætti. Þar sameinar Messiaen litríkan hljóðheim sem hefur heillað hlustendur um allan heim.


Messiaen var ekki aðeins eitt mikilvægasta tónskáld Frakklands á síðustu öld heldur einnig einn frumlegasti organisti samtímans. Hann starfaði meirihluta ævi sinnar við La Trinité-kirkjuna í París og hafði djúp áhrif á þróun kirkjutónlistar og orgelbókmennta. Verk hans einkennast af trúarlegri innsýn og íhugun fullt af óvenjulegum hljómum.


Í L’Ascension er hlustandanum boðið í ferðalag fullt kyrrðar sem felur í sér bæn til ljóss og dýrðar. Verkið fangar með áhrifamiklum hætti þann helgidóm sem uppstigningardagur felur í sér og nýtur sín einstaklega vel í hljómi Klais-orgels Hallgrímskirkju.


Björn Steinar Sólbergsson er organisti og tónlistarstjóri Hallgrímskirkju og er meðal fremstu organista Evrópu. Hann nam orgelleik á Íslandi, Ítalíu og í Frakklandi, meðal annars við Conservatoire National de Région de Rueil-Malmaison þar sem hann lauk einleikaraprófi í orgelleik árið 1986 undir handleiðslu Susan Landale.

Björn Steinar starfaði í tvo áratugi við Akureyrarkirkju og hefur komið fram víða um Evrópu og í Norður-Ameríku, bæði á einleikstónleikum og með sinfóníuhljómsveitum. Hann hélt nýverið einleikstónleika í Notre-Dame dómkirkjunni í París. Hann hefur hlotið lof fyrir túlkanir sínar á franskri orgeltónlist, þar á meðal verkum Messiaens.


Orgelandakt er hluti af helgihaldi uppstigningardags og eru öll hjartanlega velkomin.

Aðgangur er ókeypis.


HALLGRÍMSKIRKJA – ÞINN STAÐUR Á UPPSTIGNINGARDAG


--ENGLISH--


Ascension Day Organ and meditation at Hallgrímskirkja

Thursday May 14, 2026 at 11:00

On Ascension Day, organist Björn Steinar Sólbergsson performs L’Ascension by French composer Olivier Messiaen during a special service at Hallgrímskirkja. Priest is rev. Irma Sjöfn Óskarsdóttir.


Composed in 1932–33, L’Ascension is one of Messiaen’s earliest masterpieces. It is a profound and meditative work in four movements depicting the Ascension of Christ. The music is marked by luminous harmonies, contemplative beauty and deep spiritual intensity, qualities that made Messiaen one of the most influential composers of the 20th century.


Björn Steinar Sólbergsson, organist and Director of Music at Hallgrímskirkja, has performed  throughout Europe and North America and recently gave a recital at Notre-Dame Cathedral in Paris.


Free admission. All are welcome.


HALLGRÍMSKIRKJA – YOUR PLACE IN REYKJAVÍK