Orgelsumar í Hallgrímskirkju heldur áfram um helgina með framúrskarandi organistum frá Íslandi og Þýskalandi
20. júlí 2026

Orgelsumar í Hallgrímskirkju býður upp á tvenna ólíka og glæsilega orgeltónleika um helgina, þar sem bæði ungir íslenskir tónlistarmenn og virtur þýskur organisti koma fram.
Laugardaginn 25. júlí kl. 12 leika Pétur Nói Stefánsson á orgel og Ingunn Erla Sigurðardóttir á trompet.
Pétur Nói hefur á skömmum tíma skipað sér í fremstu röð ungra íslenskra organista. Hann lauk kantorsprófi frá Tónskóla Þjóðkirkjunnar árið 2025 og einleikaraprófi árið 2026 og hefur haldið tónleika víða um land. Með honum kemur fram Ingunn Erla Sigurðardóttir, trompetleikari og tónlistarkennari sem hefur leikið með meðal annars Ungsveit Sinfóníuhljómsveitar Íslands og stundar nú framhaldsnám í Danmörku.
Á efnisskránni eru verk eftir Øistein Sommerfeldt, Giovanni Buonaventura Viviani, Dietrich Buxtehude og Johann Sebastian Bach, þar sem hlýlegur hljómur trompets og hið stórbrotna orgel Hallgrímskirkju mynda einstaka tónlistarupplifun.
Sunnudaginn 26. júlí kl. 17 verður gestur Orgelsumars Tobias Frank, tónlistarstjóri og organisti við St. Lukas í München, einn af virtustu kirkjutónlistarmönnum Þýskalands.
Frank hefur komið fram í þekktustu kirkjum og dómkirkjum Evrópu, þar á meðal Westminster Abbey, St. Paul's Cathedral, Notre-Dame í París, Frauenkirche í Dresden og Berliner Dom. Hann er jafnframt þekktur fyrir skapandi tónleikaverkefni sem kynna orgelið fyrir nýjum kynslóðum.
Á efnisskránni eru meðal annars tónlist Johns Williams úr Star Wars: The Force Awakens, Corelli-tilbrigði Sergei Rachmaninoffs í útsetningu Tobiasar Frank, hið ástsæla Londonderry Air og fyrsta orgelsónata Alexandre Guilmants.
Tónleikarnir eru hluti af Orgelsumri í Hallgrímskirkju, alþjóðlegri tónleikaröð sem dregur saman framúrskarandi organista hvaðanæva að úr heiminum og sýnir fjölbreytileika orgeltónlistar í einstöku hljóðrými Hallgrímskirkju.
Orgelsumar í Hallgrímskirkju 2026
Laugardagur 25. júlí kl. 12
Pétur Nói Stefánsson – orgel
Ingunn Erla Sigurðardóttir – trompet
Aðgangseyrir á laugardagstónleikana er 3.200 kr.
Sunnudagur 26. júlí kl. 17
Tobias Frank – orgel (St. Lukas, München)
Aðgangseyrir á sunnudagstónleika: 4.200 kr.
Miðasala fer fram í Hallgrímskirkju og á https://tix.is/venue/2069
HALLGRÍMSKIRKJA – ÞINN TÓNLEIKAsTAÐUR
--ENGLISH--
Organ Summer at Hallgrímskirkja Continues This Weekend with Outstanding Artists from Iceland and Germany
Organ Summer at Hallgrímskirkja continues this weekend with two distinctive concerts featuring rising Icelandic musicians alongside an internationally acclaimed German organist.
On Saturday, 25 July at 12:00, organist Pétur Nói Stefánsson performs together with trumpeter Ingunn Erla Sigurðardóttir.
One of Iceland's most promising young organists, Pétur Nói completed his cantor's diploma in 2025 and his soloist diploma in 2026. He has already appeared in churches throughout Iceland and serves both as an organist and teacher. Joining him is trumpeter Ingunn Erla Sigurðardóttir, a graduate of the Iceland University of the Arts who has performed with the Iceland Symphony Youth Orchestra and is currently pursuing advanced studies in Denmark.
Their programme features music by Øistein Sommerfeldt, Giovanni Buonaventura Viviani, Dietrich Buxtehude and Johann Sebastian Bach, highlighting the rich dialogue between trumpet and organ.
On Sunday, 26 July at 17:00, Organ Summer welcomes Tobias Frank, Director of Music and Organist at St. Lukas Lutheran Cathedral in Munich.
Frank is internationally recognised for performances in many of Europe's leading churches and cathedrals, including Westminster Abbey, St. Paul's Cathedral, Notre-Dame Cathedral in Paris, Dresden's Frauenkirche and Berlin Cathedral. Alongside his concert career, he is known for innovative projects introducing organ music to younger audiences.
His programme ranges from John Williams' March of the Resistance from Star Wars: The Force Awakens to Rachmaninoff's Variations on a Theme of Corelli in his own organ arrangement, together with Londonderry Air and Alexandre Guilmant's monumental First Organ Sonata.
Organ Summer at Hallgrímskirkja presents distinguished organists from Iceland and abroad throughout the summer, showcasing the remarkable Klais organ in one of Reykjavík's most iconic concert venues.
Organ Summer at Hallgrímskirkja 2026
Saturday, 25 July – 12:00
Pétur Nói Stefánsson – organ
Ingunn Erla Sigurðardóttir – trumpet
Admission for the Saturday concert: ISK 3,200.
Sunday, 26 July – 17:00
Tobias Frank (St. Lukas, Munich) – organ
Admission for the Sunday concert: ISK 4,200.
Tickets are available at Hallgrímskirkja and on https://tix.is/venue/2069
HALLGRÍMSKIRKJA – YOUR PLACE IN REYKJAVÍK


