Orgelsumar í Hallgrímskirkju: Næst síðasta helgi sumarsins
10. ágúst 2026

Tvennir glæsilegir tónleikar um helgina


Laugardagur 15. ágúst kl. 12 og sunnudagur 16. ágúst kl. 17
Orgelsumarið í Hallgrímskirkju heldur áfram um komandi helgi með tvennum ólíkum en spennandi tónleikum. Á laugardaginn mætast orgel og fiðla í flutningi Elísabetar Þórðardóttur organista og Huldu Jónsdóttur fiðluleikara. Á sunnudaginn tekur hinn alþjóðlega viðurkenndi bandaríski organisti Renée Anne Louprette við orgelinu og býður upp á fjölbreytta dagskrá allt frá J. S. Bach til Nadia Boulanger, Franz Liszt og nýrri tónlistar.
Laugardagur 15. ágúst kl. 12
Elísabet Þórðardóttir, orgel og Hulda Jónsdóttir, fiðla
Á laugardaginn kl. 12 verða tónleikar þar sem orgel og fiðla kallast á í verkum eftir Josef Gabriel Rheinberger og Edward Elgar, auk hinnar þekktu Toccata úr Suite Gothique eftir Léon Boëllmann.
Á efnisskránni er Suite in c-moll, op. 166 eftir Rheinberger fyrir fiðlu og orgel, Toccata úr Suite Gothique, op. 25 eftir Boëllmann og Salut d’Amour, op. 12 eftir Elgar.
Elísabet Þórðardóttir lauk píanónámi frá Nýja Tónlistarskólanum og stundaði framhaldsnám við Musikhochschule Luzern í Sviss. Hún lauk kantorsprófi frá Tónskóla Þjóðkirkjunnar árið 2017 og einleiksáfanga árið 2018 undir handleiðslu Björns Steinars Sólbergssonar. Elísabet starfar sem organisti Laugarneskirkju og sem píanókennari og undirleikari við Tónlistarskóla Hafnarfjarðar.
Hulda Jónsdóttir er leiðari í 2. fiðlu við Sinfóníuhljómsveitina í Malmö. Hún stundaði nám við Listaháskóla Íslands og The Juilliard School í New York, þar sem hún lauk Master of Music-gráðu árið 2015. Hún hefur starfað með og leikið sem gestur með fjölmörgum þekktum hljómsveitum í Evrópu og víðar, meðal annars Det Kongelige Kapel, Sinfóníuhljómsveit Íslands, Sinfóníuhljómsveitinni í Gautaborg og Queensland Symphony Orchestra. Hulda er einnig virk sem einleikari og kammertónlistarmaður og leikur með strengjakvintettinum Wooden Elephant.
Aðgangseyrir: 3.200 kr.
Sunnudagur 16. ágúst kl. 17
Renée Anne Louprette, orgel
Á sunnudaginn kl. 17 leikur Renée Anne Louprette á Klais-orgel Hallgrímskirkju. Louprette er bandarískur organisti, stjórnandi og kennari sem hefur hlotið mikið lof á alþjóðavettvangi. The New York Times hefur meðal annars kallað hana „eina fremstu organista New York-borgar“.
Frá júní 2026 gegnir hún stöðu tónlistarstjóra og organista við Third Presbyterian Church í Rochester í New York. Hún hefur komið fram á orgelhátíðum og tónleikum víða um Evrópu, Norður-Ameríku og Ástralíu, meðal annars í Royal Festival Hall í London, Walt Disney Concert Hall í Los Angeles og Notre-Dame í París.
Dagskrá sunnudagsins hefst á Praeludium in G Major, BWV 550 eftir Johann Sebastian Bach. Þá leikur Louprette eigin útsetningu á svítu úr Céphale et Procris eftir Élisabeth Jacquet de la Guerre. Á efnisskránni eru einnig Fantasy on the Name of Roy Andrew Johnson eftir Pamela Decker, Improvisation úr Trois Pièces pour Orgue ou Harmonium eftir Nadia Boulanger og tilkomumiklar tilbrigðar Franz Liszt við Weinen, Klagen, Sorgen, Zagen eftir Bach.
Aðgangseyrir: 4.200 kr.
Miðasala er í Hallgrímskirkju og á tix.is.
Hallgrímskirkja – þinn tónleikastaður
--ENGLISH--
Organ Summer at Hallgrímskirkja: Two Recitals This Weekend
Saturday, August 15 at 12:00 and Sunday, August 16 at 17:00
Organ Summer at Hallgrímskirkja continues this weekend with two contrasting and exciting recitals. On Saturday, organist Elísabet Þórðardóttir and violinist Hulda Jónsdóttir join forces in music by Josef Gabriel Rheinberger, Léon Boëllmann and Edward Elgar. On Sunday, internationally acclaimed American organist Renée Anne Louprette takes to the organ loft with a programme ranging from J. S. Bach to Nadia Boulanger, Franz Liszt and contemporary music.
Saturday, August 15 at 12:00
Elísabet Þórðardóttir, organ – Hulda Jónsdóttir, violin
Saturday’s recital brings together organ and violin in Rheinberger’s Suite in C minor, Op. 166, Boëllmann’s celebrated Toccata from Suite Gothique, Op. 25, and Elgar’s beloved Salut d’Amour, Op. 12.
Elísabet Þórðardóttir studied piano at the Nýi Tónlistarskólinn and continued her studies at the Musikhochschule Luzern in Switzerland. She later studied organ at the Tónskóli Þjóðkirkjunnar, earning a cantor’s diploma in 2017 and a soloist diploma in 2018 under the guidance of Björn Steinar Sólbergsson. She is currently organist at Laugarneskirkja and works as a piano teacher and accompanist at the Tónlistarskóli Hafnarfjarðar.
Violinist Hulda Jónsdóttir is principal second violin of the Malmö Symphony Orchestra. She studied at the Iceland University of the Arts and The Juilliard School in New York, where she earned a Master of Music degree in 2015. Her career has included permanent and guest positions with leading orchestras in Scandinavia, Germany and Australia, including Det Kongelige Kapel, the Iceland Symphony Orchestra, the Gothenburg Symphony Orchestra and Queensland Symphony Orchestra. She is also an active soloist and chamber musician and performs with the string quintet Wooden Elephant.
Admission: ISK 3,200
Sunday, August 16 at 17:00
Renée Anne Louprette, organ
On Sunday, Renée Anne Louprette takes the organ at Hallgrímskirkja for a recital featuring music by composers from the Baroque period to the present day.
Renée Anne Louprette is an American organist, conductor and educator with an international career as a recitalist, collaborative artist and teacher. The New York Times has praised her as “one of New York’s finest organists.” Since June 2026, she has served as Director of Music Ministries and Organist at Third Presbyterian Church in Rochester, New York.
She has performed at major festivals and venues throughout Europe, North America and Australia, including Royal Festival Hall in London, Walt Disney Concert Hall in Los Angeles and Notre-Dame Cathedral in Paris. Her programme in Hallgrímskirkja opens with J. S. Bach’s Praeludium in G Major, BWV 550, followed by Renée Anne Louprette’s own transcription of a suite from Élisabeth Jacquet de la Guerre’s Céphale et Procris. The programme also includes Pamela Decker’s Fantasy on the Name of Roy Andrew Johnson, Nadia Boulanger’s Improvisation, and Franz Liszt’s monumental variations on themes from Bach’s Weinen, Klagen, Sorgen, Zagen.
Admission: ISK 4,200
Tickets are available at Hallgrímskirkja and on tix.is.