Orgelsumar í Hallgrímskirkju um Verslunarmannahelgina

27. júlí 2026

Orgelsumar heldur áfram í Hallgrímskirkju um verslunarmannahelgina með orgelmeisturum frá Íslandi og Þýskalandi.


Orgelsumar í Hallgrímskirkju heldur áfram um verslunarmannahelgina með tveimur ólíkum en einstaklega spennandi tónleikum þar sem fram koma virtir organistar frá Íslandi og Þýskalandi.


Á hádegistónleikum laugardaginn 1. ágúst kl. 12.00 leikur Eyþór Franzson Wechner, organisti við Blönduóskirkju á Klais-orgelið í Hallgrímskirkju en Eyþór hefur skapað sér gott orð sem organisti bæði hér á landi og erlendis. Hann nam við Listaháskóla Íslands áður en hann lauk bachelor- og meistaragráðu í orgelleik frá Hochschule für Musik und Theater „Felix Mendelssohn Bartholdy“ í Leipzig undir leiðsögn prófessors Stefan Engels. Auk starfa sinna sem organisti kennir hann við Tónlistarskóla Austur-Húnvetninga og Tónskóla Þjóðkirkjunnar.


Sunnudaginn 2. ágúst kl. 17.00 tekur þýski organistinn Gereon Krahforst við orgelinu en Krahforst er organisti og listrænn stjórnandi tónleikaraðarinnar við hið sögufræga Maria Laach-klaustur í Þýskalandi og hefur komið fram víða um Evrópu, Asíu og Norður-Ameríku. Hann er jafnframt þekktur tónskáld og einn af fremstu spunaleikurum Evrópu.

Á efnisskrá sunnudagstónleikanna verða verk eftir Händel, Bach, Petr Eben og fleiri höfunda, auk þriggja spuna. Sérstaka athygli vekur að Krahforst mun spinna tónlist út frá íslenskum viðfangsefnum, meðal annars þjóðlagi, norðurljósum og eldgosi, sem lofar einstakri tónlistarupplifun þar sem hugmyndaflug og hljóðheimur Klais-orgels Hallgrímskirkju fá að njóta sín til fulls.

Hádegistónleikarnir á laugardag hefjast kl. 12.00 og aðgangseyrir er 3.200 kr. Sunnudagstónleikarnir hefjast kl. 17.00 og kostar aðgangur 4.200 kr. Miðar fást í Hallgrímskirkju og á Tix.is.

Velkomin á Orgelsumar í Hallgrímskirkju – þar sem heimsklassa organistar fylla kirkjuna tónlist á hverri helgi sumarsins.