Orgelsumar um helgina – Tríó Norðsól og Anne Kirstine Mathiesen

3. ágúst 2026

Anne Kirstine Mathiesen leikur norræna tónlist með Tríó Norðsól á laugardegi og flytur „Star Wars“, „Interstellar“ og Pláneturnar á sunnudegi á Orgelsumri í Hallgrímskirkju.


Laugardagur 8. ágúst kl. 12.00 – Tríó Norðsól

Á laugardaginn kemur fram Tríó Norðsól, norrænt kammertríó skipað Svöfu Þórhallsdóttur sópran, Hönnu Englund á barokkselló og Anne Kirstine Mathiesen á orgel.

Á efnisskránni eru verk eftir norræn tónskáld ásamt tónlist eftir Gabriel Fauré, Robert Schumann og Antonín Dvořák. Tónlistin leiðir hlustendur í ferðalag frá sólarlagi inn í rökkur og drauma næturinnar þar til sólin rís á ný.

Meðal verka eru Maístjarnan eftir Jón Ásgeirsson, Första Kyssen eftir Jean Sibelius, Vökuró eftir Jórunni Viðar, Après un rêve eftir Gabriel Fauré, Mondnacht eftir Robert Schumann og Song to the Moon eftir Antonín Dvořák.


Laugardagur 8. ágúst kl. 12.00
Svafa Þórhallsdóttir, sópran
Hanna Englund, barokkselló
Anne Kirstine Mathiesen, orgel, semball og píanó

Aðgangseyrir: 3.200 kr.


Sunnudagur 9. ágúst kl. 17.00 – Anne Kirstine Mathiesen

Helginni lýkur með orgeltónleikum Anne Kirstine Mathiesen, aðalorganista við Sct. Nicolai-kirkju í Køge í Danmörku.

Mathiesen hefur komið víða fram á Norðurlöndum og í Evrópu og er virk í kammertónlist. Hún hefur meðal annars unnið með Ensemble Norðsól, þar sem hún kemur fram með Svöfu Þórhallsdóttur og Hönnu Englund.

Á sunnudaginn býður hún upp á fjölbreytta dagskrá sem spannar norræna orgeltónlist, nútímaverk og tónlist úr þekktum kvikmyndum. Á dagskránni eru meðal annars verk eftir Christian Præstholm, Bent Lorentzen, Gustav Holst og Louis Vierne.

Einnig verða fluttar útsetningar Mathiesen sjálfrar á tónlist úr Interstellar eftir Hans Zimmer og Star Wars eftir John Williams. Þar hljóma meðal annars Stay, First Step, Day One, A Place Among the Stars, Going Home, Cornfield Chase, Main Theme, Princess Leia og May the Force Be With You.


Sunnudagur 9. ágúst kl. 17.00
Anne Kirstine Mathiesen, orgel
Sct. Nicolai Kirke, Køge, Danmörk

Aðgangseyrir: 4.200 kr.


Miðar fást í Hallgrímskirkju og á Tix.is.

10% afsláttur á Orgelsumri: Þegar keyptir eru miðar á tvo eða fleiri tónleika í sömu pöntun fæst 10% afsláttur.


HALLGRÍMSKIRKJA – ÞINN TÓNLEIKASTAÐUR



--ENGLISH--


Organ Summer this weekend: Trio Norðsól and Anne Kirstine Mathiesen

Organ Summer at Hallgrímskirkja continues this weekend with two distinctive concerts celebrating Nordic music, chamber music and the rich sound of Interstellar and Star Wars.


Saturday, August 8 at 12:00 – Tríó Norðsól

On Saturday, Ensemble Norðsól performs a programme featuring soprano Svafa Þórhallsdóttir, baroque cellist Hanna Englund, and Anne Kirstine Mathiesen on organ.

The programme brings together music by Nordic composers with works by Gabriel Fauré, Robert Schumann and Antonín Dvořák. The concert takes the audience on a musical journey from sunset into twilight and the dreams of night, before the sun rises again.

The programme includes Maístjarnan by Jón Ásgeirsson, Första Kyssen by Jean Sibelius, Vökuró by Jórunn Viðar, Après un rêve by Gabriel Fauré, Mondnacht by Robert Schumann and Song to the Moon by Antonín Dvořák.


Saturday, August 8 at 12:00
Svafa Þórhallsdóttir, soprano
Hanna Englund, baroque cello
Anne Kirstine Mathiesen, organ, harpsichord and piano
Admission: ISK 3,200


Sunday, August 9 at 17:00 – Anne Kirstine Mathiesen

The weekend concludes with an organ recital by Anne Kirstine Mathiesen, Principal Organist at Sct. Nicolai Church in Køge, Denmark.

Mathiesen has performed extensively throughout Scandinavia and Europe and is an active chamber musician. She performs with several ensembles, including Tríó Norðsól with Svafa Þórhallsdóttir and Hanna Englund.


Her Sunday programme combines Nordic organ music, contemporary works and celebrated film music. Works by Christian Præstholm, Bent Lorentzen, Gustav Holst and Louis Vierne are featured. The programme also includes Mathiesen’s own organ arrangements of music from Hans Zimmer’s Interstellar and John Williams’s Star Wars. The audience will hear pieces including Stay, First Step, Day One, A Place Among the Stars, Going Home, Cornfield Chase, Main Theme, Princess Leia and May the Force Be With You.


Sunday, August 9 at 17:00
Anne Kirstine Mathiesen, organ
Sct. Nicolai Church, Køge, Denmark
Admission: ISK 4,200


Tickets are available at Hallgrímskirkja and on Tix.is.


Enjoy more concerts at Organ Summer: receive 10% off when purchasing tickets to two or more concerts in the same order.