Raddprufur Kórs Hallgrímskirkju
11. ágúst 2026

Raddprufur Kórs Hallgrímskirkju – Haust 2026

Raddprufur Kórs Hallgrímskirkju fyrir haustið 2026 fara fram í lok ágústmánaðar.
Gerð er krafa um fyrri kórreynslu og færni í nótnalestri. Kórinn æfir á þriðjudagskvöldum klukkan 19-22 auk mánaðarlegra raddæfinga.
Verkefni kórsins í vetur verða meðal annars: útgáfutónleikar fyrir fyrstu breiðskífu kórsins, upptökur, jólatónleikar með Birni Steinari Sólbergssyni organista ásamt einsöngvara og viðburðurinn Syngjum jólin inn. Kórinn undirbýr einnig utanlandsferð sumarið 2027. Kórinn tekur virkan þátt í helgihaldi í Hallgrímskirkju.
Stjórnandi kórsins er Steinar Logi Helgason.
Áhugasamir hafi samband fyrir 24. ágúst 2026 á netfangið kor@hallgrimskirkja.is