Skátar leiða skrúðgöngu frá Hallgrímskirkju á 17. júní / The Scouts will lead a parade from Hallgrímskirkja on June 17th
15. júní 2026

Skrúðganga frá Hallgrímskirkju á 17. júní / Parade from Hallgrímskirkja on Iceland's National Day

Þjóðhátíðardagurinn 17. júní – Skrúðganga frá Hallgrímskirkju
Á þjóðhátíðardaginn, 17. júní, verður Reykjavík í hátíðarbúningi og boðið upp á fjölbreytta dagskrá fyrir alla aldurshópa. Að venju verður skrúðganga frá Hallgrímskirkju þar sem skátar leiða gönguna niður í miðborgina og áfram að hátíðarsvæðinu í Hljómskálagarði.
Í Hljómskálagarði og á Klambratúni verður líf og fjör allan daginn og má finna dagskrá dagsins á heimasíðu Reykjavíkurborgar
Vegna hátíðarhaldanna verða tímabundnar götulokanir í miðborg Reykjavíkur. Gestir eru hvattir til að kynna sér upplýsingar um aðgengi, samgöngur og götulokanir áður en lagt er af stað.
Hér er kort af hátíðarsvæðinu og upplýsingar um götulokanir
Við óskum öllum Íslendingum innilega til hamingju með daginn!
HALLGRÍMSKIRKJA – ÞINN STAÐUR
--ENGLISH--
Parade from Hallgrímskirkja on Iceland’s National Day, 17th of June 2026, at 13:00.
On Iceland’s National Day, 17 June, Reykjavík will come alive with celebrations and a wide range of activities for all ages. As part of the festivities, a traditional parade will depart from Hallgrímskirkja, led by local scouts, making its way through the city centre to the main festival area in Hljómskálagarður.
Please note that temporary road closures will be in effect in central Reykjavík during the celebrations. Visitors are encouraged to review transportation, accessibility, and traffic information before travelling to the city centre.
Find HERE the festival area map with road closure information (closed streets are marked in red).
We wish everyone a happy National Day!
HALLGRÍMSKIRKJA - YOUR PLACE IN REYKJAVÍK