Söngvahátíð barnanna í Hallgrímskirkju á sumardaginn fyrsta
22. apríl 2026

Söngvahátíð barnanna fyllir Hallgrímskirkja af lífi og gleði á sumardagurinn fyrsta
Á morgun, fimmtudaginn 23. apríl kl. 14, verður sannkölluð hátíðarstemning í Hallgrímskirkju þegar Söngvahátíð barnanna fer fram. Um 180 börn úr barna- og unglingakórum víðs vegar að af landinu koma saman og fylla kirkjuna af söng og gleði á þessum sérstaka degi.
Hátíðin hefst þó fyrr um daginn, en frá kl. 10 taka kórarnir þátt í vinnustofum ásamt stjórnendum sínum þar sem börnin fá tækifæri til að æfa sama, læra, leika og efla samvinnu áður en þau stíga á svið á tónleikunum kl. 14.
- Þátttakendur í ár::
Barnakór Hallgrímskirkju I Fjóla Kristín Nikulásdóttir og Ragnheiður Bjarnadóttir
Barnakór Laugarneskirkju I Elísabet Þórðardóttir
Barnakór Selfosskirkju I Bergþóra Kristínardóttir
Barnakór Seltjarnarneskirkju I Þorsteinn Freyr Sigurðsson og María Konráðsdóttir
Barnakórinn við Tjörnina I Álfheiður Björgvinsdóttir
Barna- og unglingagospelkór Lindakirkju I Áslaug Helga Hálfdánardóttir
Eldri barnakór Akureyrarkirkju I Sigrún Magna Þórsteinsdóttir
Graduale Liberi I Björg Þórsdóttir
Söngvahátíð barnanna hefur fest sig í sessi sem einn af gleðilegustu viðburðum ársins í Hallgrímskirkju. Hún er lifandi vitnisburður um mikilvægi tónlistaruppeldis, samveru og sköpunar í lífi barna og undirstrikar jafnframt hlutverk Hallgrímskirkju sem sannkallaðs staðar barnanna.
Söngvahátíð barnanna er í samstarfi við Þjóðkirkjuna og er einnig hluti af Barnamenningarhátíð 2026
Aðgangur er ókeypis og eru öll hjartanlega velkomin á meðan húsrúm leyfir.
HALLGRÍMSKIRKJA – STAÐUR BARNANNA