Stutt spjall við Stefán Nordal

13. september 2026

Spenntur að byggja upp öflugt og skemmtilegt söngsamfélag fyrir börn í Hallgrímskirkju.

Stefán Nordal tekur við sem kórstjóri Barnakórs Hallgrímskirkju í haust en hann er tónlistarmaður og kórstjóri með fjölbreyttan bakgrunn í tónlist og söng. Stefán hyggst nýta reynslu sína og áhuga á að starfa með börnum og byggja upp öflugt og skemmtilegt söngsamfélag með okkur í Hallgrímskirkju.


Stefán hóf tónlistarnám sitt í píanóleik við Tónlistarskóla Seltjarnarness og útskrifaðist síðar úr Menntaskólanum í Tónlist. Kórsöngur hefur einnig skipað stóran sess í lífi hans frá unga aldri. Hann hóf kórferil sinn í Menntaskólanum við Hamrahlíð og hefur síðan verið virkur í fjölbreyttu kórstarfi, meðal annars með Huldum, Hamrahlíðakórnum og Ægissif.

Á síðustu árum hefur Stefán starfað sem kórstjóri söngleikja og sem tónlistarkennari í leikskóla. Þar hefur áhugi hans á tónlistarstarfi með börnum fengið að njóta sín. „Mér finnst mjög spennandi að starfa með börnum í tónlist,“ segir Stefán. „Þau eru skapandi, forvitin og óhrædd við að prófa sig áfram.“


Hann telur mikilvægt að börn fái tækifæri til að kynnast þeim fjölbreytta tónlistararfi sem Ísland hefur upp á að bjóða. Íslenski tónlistarheimurinn er ríkur af frábærum lögum og verkum sem gaman sé fyrir börn að kynnast, og ekki síður fyrir þau að fá að kynna fyrir öðrum.


Framtíðarsýn Stefáns fyrir kórstarfið snýst ekki eingöngu um tónlistina sjálfa. Hann vill að kórinn verði staður þar sem börnum líður vel og þau upplifa öryggi, samheldni og ánægju. Markmiðið er að skapa frábært söngsamfélag fyrir öll þau sem hafa gaman af því að syngja.


Barnakór Hallgrímskirkju er ætlaður börnum á aldrinum um 8 til 11 ára og verða æfingar á miðvikudögum síðdegis kl. 16:30-17:30 í norðursal kirkjunnar.

 

Stefán er þegar farinn að hugsa um spennandi markmið fyrir hópin, en meðal þess sem kórinn mun taka að sér er söngur í fjölskyldumessum, stutt tónlistarinnlegg á öðrum viðburðum og að sjálfsögðu er eitthvað skemmtilegt planað í tengslum við jólin. Þannig fái börnin tækifæri til að æfa sig, koma fram og deila tónlistinni með öðrum.


Þegar Stefán er spurður um uppáhaldslag eða sálm nefnir hann sérstaklega Syng mín sál eftir Huga Guðmundsson, lag sem passar vel við þá sönggleði og samhug sem hann vonast til að skapa í starfinu.



Með reynslu sína úr tónlistarnámi, kórstarfi og kennslu kemur Stefán með ferska og spennandi sýn inn í verkefnið. Áherslan verður á gleði, sköpun og samvera, þar sem hvert barn fær tækifæri til að finna rödd sína og verða hluti af öflugu söngsamfélagi.

Við í Hallgrímskirkju hlökkum til að taka á móti börnunum á miðvikudaginn en skráning er í fullum gangi á abler.io í gegn um hlekkinn hér að neðan


HALLGRÍMSKIRKJA – STAÐUR BARNANNA