Sunnudagur 15. mars / Kynning á nýju messuformi – Opin sálmaæfing – Messa og sunnudagaskóli
11. mars 2026

Hallgrímskirkja – Sunnudagur 15. mars 2026
Kynning á nýju messuformi kl. 10:00
Ný handbók íslensku kirkjunnar er í undirbúningi og á síðasta ári voru sendar tillögur að breytingum á messformi þjóðkirkjunnar til safnaða Þjóðkirkjunnar.
Sunnudaginn 15. mars nk. ætlum við að breyta til og nota nokkrar af tillögum handbókarnefndar kirkjunnar í messunni kl. 11.00. Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir kynnir messuformið.
Opin sálmaæfing við Frobenius kórorgelið kl. 10:30
Í beinu framhaldi verður opin sálmaæfing við Frobenius kórorgel kirkjunnar með Steinari Loga Helgasyni kórstjóra og organista og félögum úr Kór Hallgrímskirkju.
Brauð lífsins
Messa kl. 11
Sr. Irma Sjöfn Óskarsdottir þjónar fyrir altari.
Egill Reynisson, guðfræðingur prédikar.
Messuþjónar aðstoða.
Félagar úr Kór Hallgrímskirkju leiða söng.
Organisti er Steinar Logi Helgason.
Hvernig er Guð?
Sunnudagaskólinn er á sínum stað.
Umsjón: Lilja Rut Halldórsdóttir, Ragnheiður Bjarnadóttir og Kristbjörg Katla Hinriksdóttir
HALLGRÍMSKIRKJA – ÞINN STAÐUR



