Messa, sunnudagaskóli og Myrkir músíkdagar í Hallgrímskirkju sunnudaginn 1. febrúar

31. janúar 2026

Sunnudaginn 1. febrúar býður Hallgrímskirkja upp á fjölbreytta og lifandi dagskrá fyrir alla aldurshópa:

Helgihald, sunnudagaskóli, tónskáldaspjall og tónleikar.

Messa verður í Hallgrímskirkju kl. 11 undir yfirskriftinni Talenta í jörðu.

Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari, með aðstoð messuþjóna. Félagar úr kór Hallgrímskirkju leiða söng og organisti er Björn Steinar Sólbergsson.

Sunnudagaskólinn er á sínum stað á sama tíma undir yfirskriftinni Búum til bjartari og sanngjarnari heim og verður horft til ábyrgðar okkar og köllunar í heiminum til að leggja okkar af mörkum til að bæta heiminn okkar. Umsjón hafa Rósa Hrönn Árnadóttir, Lilja Rut Halldórsdóttir og Ragnheiður Bjarnadóttir.


Síðdegis tekur Hallgrímskirkja þátt í Myrkum músíkdögum 2026. Kl. 16 fer fram tónskáldaspjall þar sem Elísabet Indra Ragnarsdóttir ræðir við tónskáldið Hildigunni Rúnarsdóttur um tónskáldaferil hennar og þau verk sem flutt verða á tónleikunum. Tónskáldaspjallið fer fram á íslensku og er aðgangur ókeypis.


Að því loknu verða lokatónleikar Myrkra músíkdaga 2026 í Hallgrímskirkju: Cantoque syngur Hildigunni.

Þar flytur Cantoque Ensemble fjölbreytt úrval kórverka eftir Hildigunni Rúnarsdóttur undir stjórn Steinars Loga Helgasonar. Verk Hildigunnar einkennast af næmri textameðferð, sterku tilfinningasviði og skýru persónulegu tónmáli þar sem trúarleg arfleifð, náttúra og nútími mætast. Á tónleikunum verður meðal annars frumfluttur nýr kafli úr Requiem – Dies irae.


Miðasala fer fram í Hallgrímskirkju og á tix.is. Aðgangseyrir er 4.900 kr.


Hallgrímskirkja – þinn staður