Umpottun pálmans í Hallgrímskirkju
22. september 2026

Pálminn fær nýtt heimili í Hallgrímskirkju
Það var heldur betur líf í Hallgrímskirkju í morgun þegar pálminn okkar fékk nýtt heimili. Um er að ræða hávaxinn pálma sem hefur staðið norðan megin við altarið, hjá kapellunni. Til verksins þurfti ekki aðeins margar hendur heldur einnig öfluga vinnuvél og varkháran vélstjóra til að koma honum á sinn nýja stað.
Starfsfólk Blómavals sá um flutninginn og með góðri aðstoð vinnuvélarinnar og vélstjóra var pálmanum lyft, hann færður í nýjan pott og komið fyrir á nýjum stað í kirkjunni. Myndirnar segja sína eigin sögu.
Pálminn gjöf til Hallgrímskirkju árið 1948
Í bókinni Mínum Drottni til þakklætis – Saga Hallgrímskirkju eftir Sigurð Pálmason sem kom út árið 2015 kemur fram að pálminn hafi verið gjöf til kirkjunnar stuttu eftir að kapellan var vígð þar sem nú er suðursalur. Þá þremur árum eftir fyrstu skóflustunguna eða árið 1948. ´I bókinni stendur: „Hjónin Guðrún og Carl Ryden gáfu myndarlegan stofupálma sem komið var fyrir í kapellunni. Þessi pálmi stendur nú, rúmum 65 árum síðar, stór og stæðilegur í kirkjuskipi Hallgrímskirkju.“
Núna árið 2026 hefur hann því staðið tignarlegur og reistur í Hallgrímskirkju í 76 ár.
Pálminn – tákn lífs og vonar
Pálminn er fallegt og sterkt tákn í Biblíunni. Hann kemur víða fyrir og tengist meðal annars lífi, vexti, fegurð og þrautseigju. Í Sálmi 92 segir:
„Hinn réttláti mun blómgast sem pálmi, vaxa sem sedrustré á Líbanon.“
Myndin af pálmanum sem vex og blómstrar er falleg áminning um lífið sjálft. Eins og við vex hann, dafnar og teygir sig upp á við þrátt fyrir það sem á vegi hans verður.
Pálmar koma einnig við sögu í frásögninni af innreið Jesú í Jerúsalem. Fólkið tók á móti honum með pálmagreinum og þær urðu tákn um fagnað og von. Þannig hefur pálmagreinin lengi borið með sér boðskap um líf, sigur og nýja von.
Pálminn kominn á nýjan stað
Pálminn stóð á árunum 1948-'74 í kórkjallara kirkjunnar, frá 1947-1986 í suðursalnum og frá 1986 hefur hann verið í kirkjuskipinu,
Þar stóð hann í kapellu kirkjunnar norðanmegin við altarið hjá Maríumyndinni en hefur nú hefur fengið bæði nýjan pott og nýjan stað, áfram í kirkjuskipinum en nú norðan megin við innganginn.
Við í Hallgrímskirkju þökkum starfsfólki Blómavals kærlega fyrir góða aðstoð við flutninginn og fyrir að koma pálmanum örugglega fyrir á nýjum stað. Við hlökkum til að fylgjast með honum vaxa áfram og dafna vonandi til fjöldamargra ára til viðbótar.
Myndir: SB og Grétar Einarsson kirkjuhaldari
HALLGRÍMSKIRKJA – STAÐUR LÍFS OG VONAR SEM VEX











