ANOK
06.nóvember 2026 -06.nóvember 2026
Klukkan:
18:00

ANOK
Iceland Airwaves PARTNER EVENT @ Hallgrímskirkja
Föstudagur 6. nóvember 2026 kl. 18:00
Miðasala fer fram í Hallgrímskirkju og á tix.is
Aðgangseyrir 5.900 kr.
Anok er glænýtt verk eftir Högna Egilsson samið fyrir Cantoque Ensemble, orgel, selló, slagverk og einsöngvara..
ANOK er koptíska orðið fyrir ég — sama orð og býr að baki hebreska orðinu ānōkî í „Ég er Drottinn, Guð þinn“
Verkið sækir texta sinn í fornt ljóð sem fannst við Nag Hammadi í Efra-Egyptalandi árið 1945, afritað á fjórðu öld. Þar er engin frásögn og engin ein mynd sem heldur sér. Aðeins rödd.
Hún talar í andstæðum: hún er hin fyrsta og hin síðasta, hin virta og hin fyrirlitna, móðir og dóttir. Hún tekur sér hvert nafn og hafnar því um leið. Með hverri setningu verður sjálfið bæði skýrara og þokukenndara.
Allt hefst á einu orði: ég en hvert ég opnar nýja sprungu, röddin færist nær og fjær í senn, þar til eftir stendur ráðgáta sem bergmálar.
Flytjendur:
Högni Egilsson, tónskáld / stjórnandi
Cantoque Ensemble
Hljómsveit: Orgel, selló og slagverk
Einsöngvarar: Hallveig Rúnarsdóttir og Hildigunnur Einarsdóttir
Tónleikarnir eru samstarf Cantoque Ensemble, Iceland Airwaves og Hallgrímskirkju. Þeir eru hluti af tónleikaröðinni Haust í Hallgrímskirkju 2026 og haldinn sem Iceland Airwaves Partner Event.
HALLGRÍMSKIRKJA – ÞINN TÓNLEIKASTAÐUR
--ENGLISH--
ANOK
Iceland Airwaves PARTNER EVENT @ Hallgrímskirkja
Friday November 6th 2026 at 18:00
Tickets are available at Hallgrímskirkja and on
Admission ISK 5.900
ANOK is a new composition by Högni Egilsson for Cantoque Ensemble, organ, cello, percussion, and soloists.
ANOK means “I.”
A voice appears. It names itself, breaks apart, returns as something else. First and last. Honored and despised. Mother and daughter.
Drawn from an ancient text discovered at Nag Hammadi, ANOK moves through repetition, rupture, breath, and resonance — the self not as something whole, but something unstable, split open, and constantly becoming.
Performers:
Högni Egilsson composer / conductor
Cantoque Ensemble
Band: Organ, cello and percussion
Soloists: Hallveig Rúnarsdóttir and Hildigunnur Einarsdóttir
The concert is a collaboration between Cantoque Ensemble, Iceland Airwaves and Hallgrímskirkja. It is a part of Hallgrímskirkja’s 2026 Autumn Concert Series and is presented as an Iceland Airwaves Partner Event.
HALLGRÍMSKIRKJA – YOUR PLACE IN REYKJAVÍK