Björn Steinar Sólbergsson: 40 ára starfsafmæli / 40 Years at the Organ
27.september 2026 -
Klukkan:
17:00

Björn Steinar: 40 ára starfsafmæli
Tónleikar, starfsafmæli, útgáfutónleikar.
Sunnudaginn 27. september kl. 17 verður haldið upp á tímamót hjá Birni Steinari Sólbergssyni organista með tónleikum í Hallgrímskirkju.
Björn Steinar fagnar 40 ára starfsafmæli sem organisti hjá þjóðkirkjunni; 20 ár í Akureyrarkirkju og 20 ár í Hallgrímskirkju. Fyrr á þessu ári kom út hjá Smekkleysu nýr geiladiskur hans Íslensk orgeltónlist. Tónleikarnir verða jafnframt útgáfutónleikar disksins.
Á efnisskránni er úrval verka sem tengjast nýju útgáfunni og þeim tónlistarheimi sem hefur fylgt Birni Steinari í gegnum fjögurra áratuga feril. Þetta verður því bæði hátíðlegur tónlistarviðburður og tilefni til að fagna löngum og farsælum ferli.
Og ekki nóg með það þá á Björn Steinar á einnig afmæli þennan dag!
Það er því sannarlega tilefni til að fagna og við bjóðum ykkur hjartanlega velkomin að taka þátt í þessari sérstæðu stund.
Aðgangur er ókeypis og verður geilsadiskur Björns Steinars, Íslensk orgeltónlist, til sölu í kirkjubúðinni.
Öll hjartanlega velkomin á meðan húsrúm leyfir!
HALLGRÍMSKIRKJA – ÞINN TÓNLEIKASTAÐUR