Hallgrímskirkja með augum arkitekts: Vinnustofa fyrir börn


18.október 2026 -18.október 2026

Klukkan:

12:15

Vinnustofa fyrir börn: Hallgrímskirkja með augum arkitekts

Sunnudagur 18. október eftir fjölskylduguðsþjónustu kl. ca. 12:15.


Alma Sigurðardóttir sérfræðingur í varðveislu bygginga og höfundur barnabókarinnar Byggingarnar okkar, leiðir smiðjuna Hallgrímskirkja - með augum arkitekts þann 18. október kl. 12.


Í smiðjunni verður Hallgrímskirkja skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skyggnst inn í sögu hennar, frá hugmynd að veruleika. Hvernig verður svona stór og sérstök bygging til? Á hvað minna þessi sérstöku form sem einkenna útlit kirkjunnar? Hvað sér arkitektinn sem við tökum kannski ekki eftir?


Að lokinni skoðunarferð fá þátttakendur að setja sig í spor arkitekts og hanna sína eigin byggingu.


Ókeypis aðgangur er á alla viðburði tengda 40 ára Vígsluhátíð í Hallgrímskirkju í október 2026 en skráning í vinnustofuna er nauðsynleg og fer fram í gegn um netfangið vidburdir@hallgrimskirkja.is


HALLGRÍMSKIRKJA – STAÐUR BARNANNA