HyperOrgel / MIDI - Mini Orgelhátíð / Intelligent Instruments Lab í Hallgrímskirkju
07.febrúar 2026 -07.febrúar 2026
Klukkan:
12:00

HyperOrgel
Intelligent Instruments Lab í Hallgrímskirkju
Laugardagur 7. febrúar 2026
Hádegistónleikar kl. 12:00
Kynning kl. 13:20 í Norðursal
HyperOrgel á heila tímanum
Verk fyrir tölvustýrt orgel flutt kl. 13, 14, 16 og 17
Tækni og tónlist mætast og gefa áheyrendum nýtt sjónarhorn á Klais-orgelið í Hallgrímskirkju.
Klais orgelið í Hallgrímskirkju var vígt árið 1992. Orgelið hefur 4 hljómborð og fótspil, 72 raddir og 5275 pípur. Orgelið er 15 metra hátt, vegur um 25 tonn og stærstu pípurnar eru um 10 metra háar.
Árið 2013 var bætt við auka spilaborði í kirkjuna en það er staðsett á kirkjugólfinu og er tengt orgelinu með rafstýringum. Þá opnaðist sá möguleiki að tengja tölvu við orgelið með MIDI tengi. MIDI er einfaldur samskiptastaðall fyrir tónlist og hefur frá 1983 aðallega verið notaður til að tengja saman hljómborð og hljóðgervla.
Tölvustýrð hljóðfæri lúta öðrum lögmálum en hljóðfæri sem leikið er á af mennskum flytjendum. Ákvarðanir tónskáldsins um hraða, tímasetningar og áslátt eru leiknar af hljóðfærinu án málamiðlana. Þannig er hægt að láta hljóðfærið leika af ofurnákvæmni en einnig er möguleiki að láta tölvuna leika ónákvæmt eftir fyrirfram gefnum forsendum. Gagnvirk orgel tónlist í samhengi við lifandi flutning hentar tölvustýrðu orgeli vel, auk flókinnar algrímskrar tónlistar og tónlistar sem unnin er með vélanámi. Tölvustýring orgelsins opnar sumsagt á nýja vídd í flutningi, túlkun, hljóðáferð og upplifun áheyrenda.
HyperOrgel er verkefni Intelligent Instruments Lab, þverfaglegrar rannsóknarstofu innan Háskóla Íslands sem skoðar hlutverk gervigreindar í nýjum hljóðfærum og tækni almennt. Í Hallgrímskirkju verða kvöldtónleikar, hádegistónleikar, fyrirlestur og sömuleiðis tölvustýrð tónverk á opnunartíma kirkjunnar. Skipuleggjandi verkefnisins er Áki Ásgeirsson.
Ókeypis aðgangur allan daginn og öll hjartanlega velkomin á meðan húsrúm leyfir!
Hallgrímskirkja – Þinn tónleikastaður