Jesús læknar og hjálpar
27.september 2026 -27.september 2026
Klukkan:
11:00

Jesús læknar og hjálpar
Sunnudagaskólinn í Hallgrímskirkju býður allar fjölskyldur á öllum aldri hjartanlega velkomnar í skemmtilegt barnastarf!
Hópurinn byrjar í sameiginlegri guðsþjónustu í aðalkirkjunni. Eftir stutta stund fara börnin með leiðtogum inn í Suðursal og eiga skemmtilega stund saman.
Dagskráin er fjölbreytt og byggð á leik og sköpun:
Sögur og söngur, leikir, fjársjóðsleit og brúðuleikhús. Einnig er alltaf föndrað eitthvað sem tengist sögu og boðskap dagsins. Við lok fjölskyldustundarinnar er boðið upp á léttar veitingar í messukaffinu.
Umsjón: Lára Ruth Clausen, Rósa Hrönn Árnadóttir og Kristbjörg Katla Hinriksdóttir