Jesús stillir storminn – Fjölskylduguðsþjónusta 18. október kl. 11
18.október 2026 -18.október 2026
Klukkan:
11:00

Jesús stillir storminn
Fjölskylduguðsþjónusta með hátíðarbrag í upphafi vígsluhátíðarafmælisviku í Hallgrímskirkju
Sunnudaginn 18. október kl. 11
Fjölskyldan verður í forgrunni og hefst vígsluafmælisvikan hefst.
Stúlknakór Reykjavíkur leiðir söng undir stjórn Sigríðar Soffíu Hafliðadóttur. Alma Hlín Þórarinsdóttir, nemandi úr Söngskólanum í Reykjavík syngur einsöng.
Organisti er Björn Steinar Sólbergsson.
Messuþjónar aðstoða
Prestur er Eiríkur Jóhannsson.
Umsjón með barnastarfi hafa Lára Ruth Clausen, Kristbjörg Katla Hinriksdóttir, Rósa Hrönn Árnadóttir og Ragnheiður Bjarna
Þá hefst viðburðurinn Hallgrímskirkja með augum arkitekts: Vinnustofa fyrir börn með Ölmu Sigurðardóttur í kórkjallara Hallgrímskirkju eftir fjölskylduguðsþjónustuna kl. ca. 12:15. Þar sem Alma Sigurðardóttir sérfræðingur í varðveislu bygginga og höfundur barnabókarinnar Byggingarnar okkar, sýnir börnunum Hallgrímskirkju frá ólíkum sjónarhornum og skyggnist inn í sögu hennar, frá hugmynd að veruleika. Að lokinni skoðunarferð fá þátttakendur að setja sig í spor arkitekts og hanna sína eigin byggingu.
Skráning í vinnustofuna fer fram í gegn um netfangið vidburdir@hallgrimskirkja.is
Allir viðburðir afmælisvikunnar eru ókeypis.
Dagskrána má finna á heimasíðu kirkjunnar www.hallgrimskirkja.is
HALLGRÍMSKIRKJA – ÞINN STAÐUR
--ENGLISH--
FAMILY SERVICE AT 11 HRS.
Hallgrímskirkja celebrates 40 years since it's consecration during the week of October 18th-25th 2026.
The family service opens our anniversary week.
All events during the anniversary week at Hallgrímskirkja ar free and everyone is welcome while space allows.
All information on events can be found on our website:
www. hallgrimskirkja.is
HALLGRÍMSKIRKJA – YOUR PLACE