Kirkja í mótun – Hádegisfyrirlestrar í Hallgrímskirkju á þriðjudögum í október 2026


06.október 2026 -27.október 2026

Klukkan:

12:00

Kirkja í mótun

Hádegisfyrirlestrar í Hallgrímskirkju á þriðjudögum í október 2026 kl. 12:00–13:00. 

Léttar veitingar í boði.


Á þriðjudögum kl. 12.00–13.00 í október verður boðið upp á fræðandi fyrirlestra í Hallgrímskirkju. 


Í tilefni af 40 ára vígsluafmæli kirkjunnar gefa fyrirlestrarnir að þessu sinni áheyrendum tækifæri til að kynnast kirkjubyggingunni nánar, hugmyndunum sem liggja að baki hönnunar hennar og þeirri sögu sem mótað hefur kirkjuna, umhverfi hennar og stöðu hennar sem eins helsta kennileitis Reykjavíkur.


Kirkja í mótun

6. október kl. 12

Arkitektinn Andrés Narfi Andrésson hefur fyrirlestraröðina þriðjudaginn 6. október og fjallar þar um Hallgrímskirkju, tilurð hennar og arkitektúr.


Hallgrímssöfnuður í mótun:

13. október kl. 12-13 

Prestar Hallgrímskirkju, Irma Sjöfn Óskarsdóttir og Eiríkur Jóhannsson, ræða um söfnuð Hallgrímskirkju og stöðuga mótun hans í breytilegu samfélagi og fjalla um mótun safnaðar í síbreytilegu samhengi.

Fyrirlesturinn 13. október fjallar um Hallgrímssöfnuð í mótun


Þróun kirkjubygginga á Íslandi

20. október kl. 12-13

Hilmar Þór Björnsson, arkitekt

 Hilmar nam við Det Kongelige Danske Akademi for de Skönne Kunster í Kaupmannahöfn.

Hann hannaði m.a. Grafarvogskirkju ásamt Finni Björgvinssyni.


Myndlist í Hallgrímskirkju

27. október kl. 12-13

Aðalheiður Valgeirsdóttir, myndlistarmaður og listfræðingur


--Vinnustofa fyrir börn og hátíðarfyrirlestur í afmælisvikunni--

Dagana 18.-25. október verður sérstök afmælisvika í tilefni af vígsluafmælinu þann 25. október sem haldið verður upp á með ýmsum viðburðum. Þá verður haldin vinnustofa fyrir börn go hátíðarfyrirlestur þar sem nánar verður farið í sögu kirkjunnar og byggingu hennar.


Hallgrímskirkja með augum arkitekts: Vinnustofa fyrir börn

Sunnudagur 18. október kl. 12:15

Alma Sigurðardóttir sérfræðingur í varðveislu bygginga og höfundur barnabókarinnar Byggingarnar okkar, leiðir smiðjuna. Skráning í vinnustofuna er nauðsynleg og fer fram í gegn um netfangið vidburdir@hallgrimskirkja.is


Hátíðarfyrirlestur: Hallgrímskirkja í mótun

Fimmtudaginn 22. október kl. 17

Arkitektinn Andrés Narfi Andrésson gefur sérstakan hátíðarfyrirlestur þar sem hann fjallar nánar um Hallgrímskirkju og sögu hennar.


Ókeypis aðgangur er á alla viðburði tengda 40 ára Vígsluhátíð í Hallgrímskirkju í október 2026

Komið og fagnið með okkur!


Fyrirlestrarnir eru á íslensku.


HALLGRÍMSKIRKJA – Í  MÓTUN


--ENGLISH--


Hallgrímskirkja in the Making


Lunchtime lectures at Hallgrímskirkja on Tuesdays in October 2026, 12:00–13:00 in Icelandic.


On Tuesdays in October, from 12:00 to 13:00, a series of lunchtime lectures will be held at Hallgrímskirkja in connection with the church’s 40th anniversary of its consecration.


The events are in Icelandic.


HALLGRÍMSKIRKJA – IN THE MAKING