Kynning á Hallgrímsmessu


21.október 2026 -21.október 2026

Klukkan:

19:00

Kynning á Hallgrímsmessu

– Introduction to Hallgrímsmessa (in Icelandic)

Miðvikudagur 21. október kl. 19:00-19:30


Fyrir flutning á Hallgrímsmessu í Hallgrímskirkju sem hefst kl. 20:00 býður Örn Magnússon upp á stutta kynningu á messunni í norðursal kirkjunnar sem hefst kl. 19:00.


Hallgrímsmessa 

Árið 2014, á 400 ára afmæli Hallgríms Péturssonar kom fram sú hugmynd að stilla upp messu með messuliðum úr Grallara Guðbrands og hafa þar miðlægt vers úr Andlegri keðju Hallgríms Péturssonar. Andleg keðja er safn af versum ortum um efni 1. textaraðar kirkjuársins, eitt vers fyrir hvern helgan dag ársins.

Þetta varð úr og Hallgrímsmessa var fyrst sungin fyrsta sunnudag októbermánaðar árið 2014 í Breiðholtskirkju.


Messan er einungis sungin. Ekkert hljóðfæri er notað við messugerðina.


Kór Breiðholtskirkju hefur sungið messuna undir stjórn Arnar Magnússonar, en þar sem Örn hefur látið af störfum við Breiðholtskirkju og kórinn tengist henni ekki lengur, hefur hann tekið sér nafnið Kammerkórinn AMICI, sem segir mikið um það vinaþel sem einkennir þennan hóp.

Hallgrímsmessa hefur verið sungin í Breiðholtskirkju á hverju ári síðan 2014 og undanfarin ár hefur kórnum einnig verið boðið að syngja messuna í Hallgrímskirkju.

Í ár tekur miðaldasönghópurinn Cantores Islandiae þátt í flutningi messunar, en hans aðsetur er nú í Hallgrímskirkju.

Á undar messunni gefur Örn Magnússon stutta kynningu á Hallgrímsmessu í norðursal Hallgrímskirkju sem hefst kl. 19:00 í norðursal.


Flytjendur:

Cantores Islandia og Kammerkórinn AMICI undir stjórn Ágústs Inga Ágústssonar og Arnar Magnússonar

Prestur: Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir


Öll hjartanlega velkomin til þessrarar fallegur stundar.


HALLGRÍMSKIRKJA – ÞINN STAÐUR