Orgelsumar / Organ Summer at Hallgrímskirkja 2026 – Elísabet Þórðardóttir og Hulda Jónsdóttir
15.ágúst 2026 -15.ágúst 2026
Klukkan:
12:00

Orgelsumar í Hallgrímskirkju 2026
Laugardagur 15. ágúst kl. 12
Elísabet Þórðardóttir orgel, Laugarneskirkja Reykjavík
Hulda Jónsdóttir fiðla
Aðgangseyrir 3.200 kr.
Elísabet Þórðardóttir lauk burtfararprófi í píanóleik frá Nýja Tónlistarskólanum árið 2001 þar sem kennarar hennar voru Ragnar Björnsson og Rögnvaldur Sigurjónsson. Árin 2001-2004 lagði hún stund á framhaldsnám í píanóleik við Musikhochschule Luzern í Sviss.
Elísabet hóf nám við Tónskóla Þjóðkirkjunnar árið 2012 og lauk þaðan kantorsprófi árið 2017 og einleiksáfanga árið 2018 undir handleiðslu Björns Steinars Sólbergssonar.
Hún starfar núna sem organisti Laugarneskirkju og píanókennari og undirleikari við Tónlistarskóla Hafnarfjarðar.
Hulda Jónsdóttir fiðluleikari gegnir stöðu leiðara í 2. fiðlu við Sinfóníuhljómsveitina í Malmö. Hún er fædd 1991 og hóf fiðlunám í Reykjavík fjögurra ára gömul. Vorið 2009 lauk hún diplómaprófi frá Listaháskóla Íslands undir handleiðslu Guðnýjar Guðmundsdóttur og hóf um haustið nám við The Juilliard School í New York. Hún nam þar í borg um sex ára skeið hjá Robert Mann, David Chan og Laurie Smukler og lauk Master of Music-gráðu frá Juilliard vorið 2015. Að námi loknu starfaði Hulda í Þýskalandi og lék m.a. vetrarlangt með Ensemble Resonanz, staðarlistamönnum Elbphilharmonie í Hamborg og um tíma með Philharmonisches Staatsorchester Hamburg, auk þess að spila sem aukamaður með NDR Elbphilharmonie Orchester, Deutsche Kammerphilharmonie Bremen og Mahler Chamber Orchestra. Hún hefur búið í Kaupmannahöfn frá árinu 2018 þar sem hún var fastráðin sem uppfærslumaður Det Kongelige Kapel (Konunglegu dönsku sinfóníuhljómsveitarinnar) í Kaupmannahöfn árin 2018-2024. Sem gestaleiðari hefur hún leikið sem 2. konsertmeistari Sinfóníuhljómsveitarinnar í Gautaborg og Queensland Symphony Orchestra í Brisbane í Ástralíu — auk þess að hafa starfsárið 2024-2025 leikið sem 2. konsertmeistari Sinfóníuhljómsveitar Íslands og leitt hljómsveitina á nokkrum áskriftartónleikum. Veturinnn 2024-2025 lauk Hulda viðbótarnámi við Accademia Stauffer í Cremona á Ítalíu þar sem hún naut leiðsagnar konsertmeistara úr fremstu röð (m.a. Berliner Philharmoniker, Das Symfonieorchester des Bayerischer Rundfunks og Concertgebouw) og hún bar einnig sigur úr býtum í samkeppni innan skólans um að leika einleik í Sinfonia Concertante eftir W.A. Mozart undir stjórn Kolja Blacher.
Sem einleikari og kammertónlistarmaður hefur hún t.d. tvívegis leikið einleik með Sinfóníuhljómsveit Íslands. Auk starfsins hjá Det Kongelige Kapel leikur hún með strengjakvintettinum Wooden Elephant, en sá hópur sérhæfir sig í að takast á við verk eftir tónlistarmenn úr öðrum geirum en hinum klassíska. Kvintettinn hefur vakið töluverða athygli og fengið tækifæri til að leika í virtum tónleikasölum og hátíðum í Evrópu við góðan orðstír. Nýverið hefur hópurinn leikið á Verbier-tónlistarhátíðinni í Sviss, í kammermúsíksal Concertgebouw í Amsterdam, í Drottningarsal Svarta demantsins í Kaupmannahöfn, Alte Oper Frankfurt, Brucknerhaus Linz og á Days Off-hátíð Philharmonie de Paris. Einnig hafa þau starfað með Ballet am Rhein og danshöfundinun Gil Harush og leikið á útvarpstónleikum fyrir Bayerischer Rundfunk. Þá var nýverið gefin út upptaka með bandarísku listakonunni Moor Mother, Wooden Elephant og Beethovenorchester Bonn sem hefur hlotið tilnefningu til verðlaunanna Preis der deutschen Schallplattenkritik.
HALLGRÍMSKIRKJA – ÞINN STAÐUR