Opin sálmaæfing fyrir messu 3. maí kl. 10:30
03.maí 2026 -03.maí 2026
Klukkan:
10:30

Opin sálmaæfing
Langar þig til að syngja með í messum en þekkir ekki alltaf lögin? Þá er þetta kjörið tækifæri til að undirbúa sálma messunnar.
Við æfum saman sálmana við Frobenius kórorgel Hallgrímskirkju áður en messan hefst.
Opin sálmaæfing verður kl. 10:30 fyrir messu sunnudaginn 3. maí í Hallgrímskirkju. Björn Steinar Sólbergsson, organisti og kórstjóri kirkjunnar, verður við orgelið og kynnir sálma messunnar ásamt félögum úr Kór Hallgrímskirkju. Messan hefst kl. 11.
Fyllum kirkjuna af söng!
Ókeypis aðgangur og öll hjartanlega velkomin.
HALLGRÍMSKIRKJA – ÞINN STAÐUR