Orgelsumar í Hallgrímskirkju / Organ Summer 2026 – Andreas Jetter (Kathedrale Chur Switzerland)


19.júlí 2026 -19.júlí 2026

Klukkan:

17:00


Orgelsumar í Hallgrímskirkju 2026

Sunnudagur 19. júlí kl. 17

Andreas Jetter orgel, Kathedrale Chur Switzerland

Aðgangseyrir  4.200 kr.


Andreas Jetter (f. 1978) hefur gegnt stöðu tónlistarstjóra við dómkirkjuna í Chur í Sviss frá árinu 2010. Sú staða felur jafnframt í sér hlutverk dómorganista og kórstjóra dómkirkjunnar. Hann er einnig listrænn stjórnandi dómkirkjunnar og tónleikaraða orgeltónleika þar. Árið 2013 var hann jafnframt skipaður tónlistarstjóri Maríukirkjunnar í Radolfzell við Bodenvatn í Þýskalandi, og sinnti hann því starfi til vorsins 2023. Á árunum 2004 til 2010 gegndi hann einnig stöðu aðalorganista við Salem-klaustrið við Bodenvatn.


Hann stundaði nám í kirkjutónlist, orgelleik, píanóleik og hljómsveitarstjórn við tónlistarháskóla í Esslingen, Rottenburg, Trossingen og Tübingen. Hann lauk einnig námi með framúrskarandi árangri sem píanóleikari og hljómsveitarstjóri við Rachmaninoff-stofnun Tchaikovsky-tónlistarháskólans í Moskvu, þar sem hann varð fyrsti erlendi styrkþegi Rússneska sambandsríkisins og útskrifaðist árið 2002 með svokallað „rautt prófskírteini“ (Red Diploma).


Andreas Jetter hefur komið fram sem organisti, píanóleikari og hljómsveitarstjóri í helstu dómkirkjum og kirkjum Evrópu og víðar um heim, auk þekktra tónleikasala. Hann hefur hljóðritað fjölda geisladiska. Hann gaf út alla píanókonserta Sergeis Rachmaninoff með Fílharmóníuhljómsveit Moldóvu, fyrir Koch Discover-útgáfuna. Þá hafa einnig komið út með honum hljóðritanir þar sem hann flytur píanókonserta eftir Johannes Brahms, Robert Schumann og Charles Villiers Stanford,hjá Antes Edition (Bella Musica).


Sem organisti hefur hann gefið út fjölda hljóðrita þar sem síðrómantísk tónlist er í forgrunni. Þar má nefna allar orgelsónötur Max Gulbins, og útsetningu Jetters sjálfs á sinfóníu Hans Rotts, auk seríu með orgelverkum Franz Schmidt og Hans Fährmann, hjá útgáfunum Motette og Ambiente Audio.


Andreas Jetter hefur m.a. lagt sérstaka áherslu á að draga fram minna þekkt verk frá síðrómantíska tímabilinu, t.d. Quo vadis? eftir Felix Nowowiejski (2019) og Moses eftir Max Bruch (2017).


Efnisskrá – "Himnesk gleði"


Hans Rott (1858–1884)

Symphonic Movement in E major (1878)

(1st movement, “Alla breve”, from the Symphony in E major,

transcription for organ by Andreas Jetter, 2021)


Dezső Antalffy-Zsiross (1885–1945)

“Sportive Fauns” – Scherzo after paintings by Boecklin

from: Four Pieces for Organ (1922)


William Thomas Best (1826–1897)

“Gorhoffedd Gwŷr Harlech” –

Concert Fantasy on a March from Wales


Franz Schmidt (1874–1939)

Chaconne in C-sharp minor (1925)

I. Aeolisch – II. Lydisch – III. Dorisch – IV. Ionisch


HALLGRÍMSKIRKJA – ÞINN TÓNLEIKASTAÐUR


--ENGLISH--


Organ Summer at Hallgrímskirkja 2026

Sunday July 19th at 17hrs

Andreas Jetter organ, Kathedrale Chur Switzerland

Admission  ISK 4.200


Andreas Jetter, born in 1978, has served as Director of Music at Chur Cathedral (Switzerland) since 2010, a position that also includes the roles of cathedral organist and cathedral choirmaster. He is likewise the artistic director of the cathedral and cathedral organ concert series there. In 2013 he was additionally appointed Master of Music at the Minster of Our Lady in Radolfzell (Lake Constance, Germany); this appointment concluded in spring 2023. From 2004 to 2010, Andreas Jetter was principal organist at Salem Minster (Lake Constance, Germany).


Jetter studied church music, organ, piano, and conducting at the universities of music in Esslingen, Rottenburg, Trossingen, and Tübingen. With distinction, he completed studies as a pianist and conductor at the Rachmaninoff Institute of the Tchaikovsky Conservatory in Moscow—becoming the first foreign scholarship holder of the Russian Federation—and graduated in 2002 with a “Red Diploma.”


Program – “Heavenly Joys”


Hans Rott (1858–1884)

Symphonic Movement in E major (1878)

(1st movement, “Alla breve”, from the Symphony in E major,

transcription for organ by Andreas Jetter, 2021)


Dezső Antalffy-Zsiross (1885–1945)

“Sportive Fauns” – Scherzo after paintings by Boecklin

from: Four Pieces for Organ (1922)


William Thomas Best (1826–1897)

“Gorhoffedd Gwŷr Harlech” –

Concert Fantasy on a March from Wales


Franz Schmidt (1874–1939)

Chaconne in C-sharp minor (1925)

I. Aeolisch – II. Lydisch – III. Dorisch – IV. Ionisch


HALLGRÍMSKIRKJA – YOUR PLACE IN REyKJAVÍK