Orgelsumar í Hallgrímskirkju / Organ Summer 2026 – Matthías Harðarson (Dómkirkjan í Reykjavík)


11.júlí 2026 -11.júlí 2026

Klukkan:

12:00

Orgelsumar í Hallgrímskirkju 2026

Hádegistónleikar – Matthías Harðarson, dómorganisti

Laugardagur 11. júlí 2026 kl. 12

Miðasala fer fram í Hallgrímskirkju og á tix.is

Aðgangseyrir 3.200 kr.


Matthías Harðarson er organisti við Dómkirkjuna í Reykjavík. Matthías hóf píanónám 10 ára gamall við Tónlistarskólann í Vestmannaeyjum. Meðal kennara hans þar voru þau Gíslína Sól Jónatansdóttir, Guðmundur H. Guðjónsson og Kittý Kovács. Hann lærði einnig á saxófón undir handleiðslu Stefáns Sigurjónssonar. Að loknu miðprófi á píanó hóf Matthías orgelnám hjá þáverandi organista Landakirkju, Guðmundi H. Guðjónssyni, og síðar hjá Kittý Kovács. Árið 2016 lauk Matthías kirkjuorganistaprófi frá Tónskóla Þjóðkirkjunnar og árið 2020 kantorsprófi og BA-prófi við Listaháskóla Íslands. Þar lærði hann orgelleik hjá Birni Steinari Sólbergssyni, kórstjórn hjá Magnúsi Ragnarssyni og litúrgískan orgelleik hjá Guðnýju Einarsdóttur, Eyþóri Inga Jónssyni og Láru Bryndísi Eggertsdóttur. Matthías lauk meistaraprófi í kirkjutónlist við konunglega tónlistarháskólann í Árósum undir leiðsögn Kristians Krogsøe, Lars Rosenlund Nørremark og Ulriks Spang-Hanssen. – Samhliða orgelnáminu lagði Matthías stund á vélstjórnarnám og útskrifaðist sem vélfræðingur árið 2017.


Hallgrimskirkja – Þinn tónleikastaður


--ENGLISH--


Organ Summer at Hallgrímskirkja 2026

Matinée with Matthías Harðarson, Organist at The Cathedral of Reykjavík

Saturday July 11th at 12hrs

Tickets are available at the entrance and on tix.is

Admission ISK 3.200


Matthías Harðarson was recently appointed Organist at Reykjavík Cathedral. Matthías began his musical studies at the age of 10, at the Music School of Vestmannaeyjar. His teachers there were Gíslína Sól Jónatansdóttir, Guðmundur H. Guðjónsson and Kittý Kovács. With Stefán Sigurjónsson as teacher he also played the saxophone. In 2016, Matthías graduated with a Church Organist diploma from the Music School of the National Church in Iceland. In 2020, he graduated from Iceland University of the Arts with a BA degree in Church Music and a Cantor diploma. His teachers there were Björn Steinar Sólbergsson (organ), Magnús Ragnarsson (choir conducting), Guðný Einarsdóttir, Eyþór Ingi Jónsson, and Lára Bryndís Eggertsdóttir (liturgical organ playing). Matthías has a Masters’s degree from The Royal Academy of Music in Aarhus (Denmark), where Kristian Krogsøe, Lars Rosenlund Nørremark, and Ulrik Spang-Hanssen were his teachers. – Moreover, in 2017, Matthías graduated as a Marine Engineer.


Hallgrímskirkja – Your place in Reykjavík