Tui Hirv og Páll Ragnar Pálsson flytja lög af plötunni Layers
15.nóvember 2026 -15.nóvember 2026
Klukkan:
12:30

Tui Hirv & Páll Ragnar Pálsson flytja lög af Layers
Eftir sunnudagmessu 15. nóvember munu Tui Hirv og Páll Ragnar Pálsson halda stutta tónleika í Hallgrímskirkju kl. 12:30.
Lögin sem Tui og Páll Ragnar flytja á tónleikunum eru af nýútkominni plötu þeirra, Layers, sem kom út hjá bandarísku útgáfunni Sono Luminus þann 23. október síðastliðinn. Á plötunni eru útsetningar Tui og Páls á gömlum trúarlegum þjóðlögum, flest þeirra frá Eistlandi, en einnig frá norðurlöndum og Bretlandi. Lögin hafa verið sungin í hundruði ára og mótast eftir flytjendum og aðstæðum. Nafn plötunnar vísar þannig til uppruna laganna og hvernig þau hafa átt sér sín ólíku líf í gegnum tíðina.
Páll Ragnar Pálsson, gítarleikari og tónskáld, og Tui Hirv, söngkona og tónlistarfræðingur, ólust upp í sitthvorum heiminum, hann í íslensku rokksenunni með öllu því frelsi og leikgleði sem henni fylgdi, og hún í strang-akademísku skólakerfi Eistlands og kórmenningu. Leiðir þeirra lágu saman í tónlistarakademíunni í Tallinn og hafa síðan þá unnið saman að listsköpun, þar sem Tui hefur flutt tónverk Páls bæði hér og erlendis.