Fjölskylduguðsþjónusta og vorhátíð barnastarfsins í Hallgrímskirkju.
10.maí 2026 -10.maí 2026
Klukkan:
11:00

Sunnudaginn 10. maí kl. 11:00 verður fjölskylduguðsþjónusta og vorhátíð barnastarfsins í Hallgrímskirkju. Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir leiðir guðsþjónustuna og Barnakór Hallgrímskirkju syngur undir stjórn Fjólu Kristínar Nikulásdóttur. Organisti er Björn Steinar Sólbergsson.
Að guðsþjónustu lokinni tekur við gleðileg vorhátíð fyrir alla fjölskylduna með hoppukastala, sápukúlum, krítum, grilluðum pylsum og fleiru skemmtilegu. Umsjón með barnastarfinu hafa Lilja Rut Halldórsdóttir, Rósa Hrönn Árnadóttir, Lára Ruth Clausen og Ragnheiður Bjarnadóttir.
Öll eru hjartanlega velkomin – Hallgrímskirkja er staður barnanna.